Launabreytingar - villa í birtingu fjáhæða í grafi
Grafið í Launabreytingum á Kjarna vef var ekki í öllum tilfellum að birta réttar fjárhæðir. Það hefur verið lagfær og er virknin þannig að grafið birtir fjárhæð heildarlauna skilgreindra launaliða fyrir árið deilt með stöðugildafjölda.
Launabreytingar - farið beint í beiðni úr tölvupósti
Þegar sótt er um launabreytingu kemur tölvupóstur á skilgreint netfang/netföng. Núna þegar smellt er á hnappinn í tölvupóstinum opnast beiðnin sjálf sem verið var að senda inn. Einnig hefur verið bætt við Stöðu launabreytingar í beiðnina sjálfa svo ekki þurfi að fara í listann til að breyta henni.
Beiðnir sýnilegar þrátt fyrir að dagsetning sé liðin
Virknin var þannig að ef dagsetning var liðin á beiðni þá rann hún út og yfirmaður gat ekki samþykkt beiðnina. Þessu hefur verið breytt og hanga núna beiðnir áfram undir Óafgreiddar beiðnir þrátt fyrir að dagsetning sé liðin. Með þessari breytingu gætu eldri beiðnir sem runnu út án samþykktar farið að birtast yfirmanninum. Þarf því að taka afstöðu til þessara eldri beiðna.