Launaliður sem er lesinn inn breytist við uppfærslu launa
Þegar aðgerðin “Uppfæra samn, lfl og þrep í launafærsluskrá úfrá spjöldum” þá var hún að breyta fjárhæðum á færslum sem komu frá bunka með því að núlla þær.
Þetta hefur verið lagfært og aðgerðin uppfærir nú aðeins þær færslur sem eiga við eiga.
Skýrslan Grunnlaun - bæta starfafjölskyldu í "velja dálka"
Nú er hægt að draga svæðin Starfafjölskylda og Starfafjölskylda vísir inn í skýrsluna Grunnlaun undir mannauður.
Til minnis - lagfæring á virkni
Smávægileg breyting var gerð á spjaldinu Til minnis. Einungis er hægt að velja hvort sýna eigi spjald í skráningu launa og hægt er að fela svæðið þar hjá starfsmönnum með því að smella á X.
Sjá nánari leiðbeiningar hér: Til minnis
Aldurshækkanir - leyfa aðeins einn möguleika í Aðgerðum
Valskjá aldurshækkana hefur verið breytt þannig að núna opnast hann án þess að hakað sé í nokkra aðgerð. Haka þarf í þá aðgerð sem framkvæma á en aðeins á að vinna með eina aðgerð í einu.
Launabreytingar - villa í birtingu fjáhæða í grafi
Grafið í Launabreytingum á Kjarna vef var ekki í öllum tilfellum að birta réttar fjárhæðir. Það hefur verið lagfær og er virknin þannig að grafið birtir fjárhæð heildarlauna skilgreindra launaliða fyrir árið deilt með stöðugildafjölda.
Launabreytingar - farið beint í beiðni úr tölvupósti
Þegar sótt er um launabreytingu kemur tölvupóstur á skilgreint netfang/netföng. Núna þegar smellt er á hnappinn í tölvupóstinum opnast beiðnin sjálf sem verið var að senda inn. Einnig hefur verið bætt við Stöðu launabreytingar í beiðnina sjálfa svo ekki þurfi að fara í listann til að breyta henni.
Launabreytingar - Stofnað af og Stofnað þann bætt við lista
Svæðunum Stofnað af og Stofnað þann var bætt við listann fyrir launabreytingar.
Launabreytingar - gildið Afgreitt bætt við staða launabreytingar
Gildinu Afgreitt hefur verið bætt við stöðu launabreytingar.
Starfsmannavefur Launamiðar - stilla sjálfgefið ár
Birtingu launamiða á starfsmannavef var breytt þannig að sjálfvalið opnast alltaf árið á undan því ári sem miðarnir opnast á. Td. núna árið 2024 kemur sjálfvalið árið 2023 sem birtir nýjustu miðana.
Takmarka sendingu í Gagnalónið m.v. valda kjarasamninga
Þau sveitarfélög sem eru að senda gögn úr Kjarna yfir í Gagnalón Sambands íslenskra sveitarfélaga geta núna unandskilð ákveðnar launatöflur úr sendingunni. Ef slegin er inn skipunin PayTable.List þá kemur upp listi yfir alla launatöflur og hjá þeim sem eru með kveikt á launakönnun sveitarfélaga kemur þar hak þar sem merktar eru þær launatöflur sem sendast eiga. Ef ekki er hakað við launatöflu Þá sendist sú tafla ekki í gagnalónið. Þetta svæði kemur einnig fram þegar verið er að stofna nýja launatöflur svo hægt er að skilgreina þær strax. Sjá nánar hér: Launakönnun sveitafélaga
Fagaldur - Nýr launaliður
Virkni fagaldurs var breytt lítillega þannig að nú reiknst hann í sérstökum launalið líkt og starfsladurinn. Þessi launaliður kemur inna launafærslur þegar útborgun er lokað. Einnig var útbúin ný skýrsla undi Mannauðir sem heitir “Stöðugildi, starfsaldur og fagaldur”.