Mannauður - stofngögn fyrir hæfni
Búið er að bæta stofngögnum fyrir hæfni á Kjarna vefinn undir Mannauður.
Mannauður - síu bætt á dálka í listum
Bætt var við síu á dálka í listunum Orlofsbeiðnir og Samþykkt orlof. Einnig var dálknum Skipulagseining bætt við listana.
Mannauður - bætt við lengd námskeiðs
Þegar námskeið var skráð á starfsmann á Kjarna vefnum var ekki hægt að skrá lengd námskeiðs. Þessu var bætt við.
Mannauður - upplýsingum bætt við í upplýsingar um starfsmann
Bætt var við upplýsingum um þjóðerni og móðurmál í upplýsingum um starfsmann. Eins voru dálkar endurraðaðir þegar verið er að breyta upplýsingum um starfsmann.
Mannauður - hæfni og réttindi - endadagsetning
Ef gildistími var í stofngögnum á hæfni var það ekki að skila sér í endadagsetningu í hæfnispjald og réttindaspjald starfsmannsins á Kjarna vefnum. Þetta hefur verið lagað.
Mannauður - Samanburður
Búið er að bæta við listanum Samanburður þar sem hægt er að sjá upplýsingar um hæfni og réttindi sem skráð eru á ákveðna stöðu og hver staðan á hverri hæfni og réttindi er á þeim starfsmönnum sem sitja þessa stöðu. Hér er hægt að sjá nánari upplýsingar um þessa virkni: Samanburður
Teymið mitt - birta næsta yfirmann
Bætt var við að næsti yfirmaður birtist á flísinni Tenging innan fyrirtækis hjá starfsmanni.
Teymið mitt - tegund skjals í stafrófsröð
Þegar skjali var bætt á starfsmann þá kom listinn yfir tegundir skjala eftir vísis númeri. Þessu hefur verið breytt og kemur listinn núna í stafrófsröð.
Orlofsbeiðnir - ártali bætt við beiðnir
Ártalið var ekki að birtast á orlofsbeiðnum, einungis dagur og mánuður. Ártalinu var bætt við.
Orlofsbeiðnir - dagsetningu bætt við Eldri beiðnir
Dagsetningu var bætt við beiðnir undir Eldri beiðnir. Efst í listann kemur sú beiðni sem var samþykkt/hafnað seinast.
Dagpeningar - sjálfvalið gildi eða festa gildi
Á starfsmannavefnum var hægt að hafa stillt sjálfvalið gildi fyrir tegund eða festa gildi fyrir tegund. Þessari virkni hefur núna einnig verið bætt við á Kjarna vefnum. Ef óskað er eftir að bæta þessum stillingum við skal senda beiðni á service@origo.is
Rafræn undirritun - lagfæring þegar verið er að breyta sniðmáti
Þegar verið er að senda skjal í rafræna undirritun og valið er að breyta sniðmátinu þá var glugginn sem sniðmátið opnast í stækkaður. Einnig er hægt að stækka hann enn meira með því draga gluggann til þar sem stendur POWERED BY TINY í hægra horninu. Einnig var lagfært að forskoðunin á skjalinu fylgir núna þegar skrunað er neðar á síðuna.
Rafræn undirritun - tegund skjals í stafrófsröð
Þegar verið var að senda skjal á starfsmann í rafræna undirritun kom listinn yfir tegundir skjala eftir vísis númeri. Þessu hefur verið breytt og kemur listinn núna í stafrófsröð.
Launaáætlun færð í sér flipa
Búið er að færa launaáætlunina í sér flipa í hliðarvalmynd á Kjarna vefnum. Við þessa breytingu þarf að birta þennan kerfishluta sérstaklega á Kjarna vefnum og mun launaáætlunin því hætta að birtast á Kjarna vefnum. Til að fá hana birta aftur þarf að senda beiðni á service@origo.is og óska eftir að kveikt sé á þessum kerfishluta. ATH. það felur ekki í sér kostnað að láta kveikja á þessum kerfishluta fyrir þá viðskiptavini sem eiga kerfishlutann Launaáætlun.