Launaliðir - Lagfæra uppröðun í svæðinu Launaseðill undir flipanum Tafla/Seðill/Hópar
Gerð var lagfæring á svæðum undir flipanum Tafla/Seðill/Hópar á launaliðum þannig að “Röð á launaseðli” var fært neðst og “Launaliður á launaseðli” er núna komið með leitarsvæði aftast í línu.
Vistun í efri hluta skráningar launa
Ekki var hægt að vista lagfæringar sem gerðar voru í efri hluta skráningar launa. Nú er hægt að smella á hnappinn “Geyma glugga sniðmát” (blýantur) í efri tækjaslá og þá vitast þær breytingar sem gerðar hafa verið.
Stoppa fluttning bunka í lokaða útborgun
Hægt var að flytja Viðverubunka inn í lokaðar útborganir. Það hefur verið lagfært og ef slíkt er reynt þá koma upp boð um að útborgun sé lokuð.
Aldurshækkanir - Tímabil ef aðeins eftirágreiddir í útborgun
Ef aðeins var verið að vinna með eftirá greidd laun í útborgunum þá þurfti samt sem áður alltaf að skrá eftirá dagsetninguna í svæðin fyrir fyrirfram í valskjá Aldurshækkana. Þessu hefur verið breytt þannig að eftirá dagsetningin skráist nú sjálkrafa í svæðið ef aðeins er unnið með eftirá greidd laun.
Flýtiskráning - Bæta við dálkum
Eftirtalin svæði er nú hægt að sækja inn í flytiskráningu:
Samningur
Samningur nr
Launaflokkur
Þrep
Launabreytingar - Bæta við möguleika á að eyða beiðni
Fyrir aftan svæðið Staða launabreytinga undir Launabreytingar hefur verið bætt við þremur aðgerðum. Þar er núna hægt að senda í Rafræna undirritun, breyta beiðni og eyða beiðni.
Launabreytingar - Bæta sviði og núverandi launum í sýnileg gögn
Undir Launabreytingar er nú hægt að birta bæði svið og núvernadi laun.