Launabreytingar - Bæta við möguleika á að eyða beiðni
Fyrir aftan svæðið Staða launabreytinga undir Launabreytingar hefur verið bætt við þremur aðgerðum. Þar er núna hægt að senda í Rafræna undirritun, breyta beiðni og eyða beiðni.
Launabreytingar - Bæta sviði og núverandi launum í sýnileg gögn
Undir Launabreytingar er nú hægt að birta bæði svið og núvernadi laun.
Launabreytingar - Launatöflubreytingar
Nú er hægt að framkvæma launabreytingar í Kjarna fyrir starfsmenn sem eru á launatöflum sem fylgja kjarasamningum þannig að verið er að færa þá í ákveðna launaflokka og þrep sem búið er að skilgreina í launatöflu. Setja þarf inn stillingu í Gildi með upptalningu á númerum þeirra launataflna sem við á. Ráðgjafar Origo geta aðstoðað við þær stillingar ef send er beiðni þess efnis á service@origo.is. Sjá frekari upplýsingar í handbók: Launabreytingar á vef
Launabreytingar - Birting mánaðarlauna
Birting mánaðarlauna í launabreytingum var upphaflega þróuð þannig að fjárhæðin kæmi úr föstum liðum. Það var að valda því að hjá þeim sem ekki eru að nota fasta liði kom engin fjárhæð fram fyrir mánaðarlaunin. Virknin hefur verið lagfærð þannig að ef ekkert er skráð í fasta liði fá er fjárhæð mánaðaralauna sótt í grunnlaunaspjald.
Launabreytingar - Virkni þegar beiðni er samþykkt
Þeir sem ekki eru að nota rafrænar undirritanir geta núna sent tölvupóst á starfsmenn þegar launabreyting er samþykkt. Sjá nánari upplýsingar í handbók: Launabreytingar á vef
Mannauður - Orlofsbeiðnir fyrir hætta starfsmenn
Ef starfsmaður hættir og á ósamþykkta orlofsbeini þá dettur hún núna út í beiðnalista hjá yfirmanninum.
Mannauður - Starfsmannalisti - birta hætta starfsmenn
Búið er að bæta við valmöguleika að geta birt hætta starfsmenn í starfsmannalistanum. Setja þarf inn stillingu fyrir þessa virkni og skal senda beiðni á service@origo.is ef óskað er eftir að fá þetta inn.
Þegar valið er að birta hætta starfsmenn eru allar ráðningartegundir sóttar þar á meðal Hættur, Á eftirlaunum, Í áætlun, Á starfslokasamningi.
Mannauður - Nánasti aðstandandi 2
Búið er að bæta við Nánasti aðstandandi 2. Er því í boði núna að skrá tvo aðila sem nánasta aðstanda. Eru þessar upplýsingar á flísinni Nánasti aðstandandi hjá starfsmanni.
Mannauður - flís Umsjónarmenn
Bætt var við flísinni Umsjónarmenn en birta þarf þessa flís sérstaklega á kerfi viðskiptavinar. Á þessari flís birtist Starfsmannafulltrúi, Launafulltrúi, Tímastjóri og Framkvæmdaraðili frammistöðumats sem skráð eru á starfsmanninn. Gögnin birtast bara ef þau eru skráð á starfsmanninn. Hægt er að fela Framkvæmdaraðili frammistöðumats sérstaklega ef ekki er verið að nota frammistöðumatshlutann þar sem það gildi er á öllum starfsmönnum óháð því hvort verið er að nota þá virkni eða ekki.
Ráðningarferli/Starfsmannaferlar - tékk hvort launaflokkur og launaþrep sé til fyrir viðkomandi launatöflu
Í grunnlaunaskrefinu í ráðningarferlinu/starfsmannaferlum er búið að bæta við tékki fyrir launaflokk og launaþrep og hvort það tilheyri ekki þeirri launatöflu sem er valinn.
Ráðningarferli/Starfsmannaferlar - Síðasti starfsdagur fyrir tímabundna ráðningu og sumarvinna
Ef valin er tegund ráðningar Tímabundin ráðning/Sumarvinna í ráðningarferli/starfsmannaferlar þá kemur upp pop-up þar sem hægt er að skrá síðasta starfsdag. Ef dagsetning er valin í þessum glugga stofnast hættur færsla með gildisdagsetningu daginn eftir þann dag sem var valinn.
Starfsmannaferlar - athugasemd ef kennitala er til
Ef starfsmaður er til í Kjarna en á bara til starfsmananspjald (byrjað að stofna starfsmanninn í client eða komið villa á vef og þ.a.l. stofnast bara starfsmannaspjaldið) þá hefur athugasemd þess efnis alltaf komið þegar búið er að fara í gegnum allt starfsmannaferlið. Núna kemur þessi athugasemd strax og kennitalan er slegin inn.
Tölfræði fyrir þjóðerni á upphafssíðu
Búið er að bæta við flís fyrir þjóðerni á upphafssíðu. Hægt er að fela þessa flís með stillingu ef ekki er vilji til að birta hana.
Athugið að þessi flís er að birta það gildi sem er í þjóðerni en hægt er að finna þessi gögn undir Stofnskrár > Lönd í Kjarna. Ef þessi dálkur er tómur eða vantar gildi kemur heitið tómt á þessari flís. Þarf því að uppfæra þessi gildi til að flísin skili réttum niðurstöðum.