EmployeeAll* þjónustur skila framtíðargildum úr færslum í Tenging innan fyrirtækis
Vefþjónustan sem skilar upplýsingum um færslur úr spjaldinu Tengingar innan fyrirtækis var að skila alltaf nýjustu færslunni en ekki þeirri færslu sem er virk í dag ef framtíðarfærslur voru skráðar. Þetta hefur verið lagað og skilar núna vefþjónustan þeirri færslu sem er virk í dag.
Jafnlaunavottun - viðmið - stöður - bætt við
Merking á skipulagseiningu - óvirk
Ef skipulagseining er hætt í notkun er hægt að haka í "Óvirk". Hættir skipulagseiningin þá að birtast í listanum yfir skipulagseiningar undir Stofnskrár > Skipulagseiningar nema valið sé sérstaklega að birta þær skipulagseiningar sem eru með hakað í "óvirk". Einnig hætta þessar skipulagseiningar að birtast í valskjá þegar leita á eftir skipulagseiningum.
Merking á stöðu - óvirk
Ef staða er hætt í notkun er hægt að haka í "Óvirk". Hættir staðan þá að birtast í listanum yfir stöður undir Stofnskrár > Stöður nema valið sé sérstaklega að birta þær skipulagseiningar sem eru með hakað í "óvirk". Einnig hætta þessar stöður að birtast í valskjá þegar leita á eftir stöðum.
Rangur yfirmaður birtist í listum fyrir menntun, hæfni, hlutir í láni og réttindi
Þegar listar voru teknir úr Mannauður - Menntun, Hæfni, Hlutir í láni og Réttindi var ekki að birtast réttur yfirmaður m.v. Tenging innan fyrirtækis. Þetta hefur verið lagað.
Jafnlaunavottun - Viðmið - Stöður
Bætt var við svæðum sem hægt er að velja inn sem dálka í listann.