Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 10 Next »

Starfaflokkun

Til þess að einfalda viðskiptavinum flokkun á jafnverðmætum störfum fyrir jafnlaunavottunina er hægt að skrá Logib flokkunina, ábyrgð, hæfniskröfur og menntun/reynslu, inn á stöður í Kjarna. 

Viðhald á stöðum fer fram undir Kjarni > Stofnskrár > Stöður. Á stöðunum er flipinn Jafnlaunavottun þar sem hægt er að skrá Logib flokkun viðkomandi stöðu. 

Þegar verið er að flokka margar stöður í einu getur verið gott að skrá Logib flokkunina á stöðurnar í gegnum Select lista. 

Listunum á bakvið hvern flokk fyrir sig, þ.e. ábyrgð, hæfniskröfu og menntun/reynslu, er viðhaldið undir Kjarni > Stofnskrár. Þar er að finna alla þrjá listana og notendur geta viðhaldið þeim sjálfir. Athugið að ábyrgðin á að vera á skalanum 1-5, hæfniskröfurnar á skalanum 1-4 og menntun/reynsla á skalanum 1-9, þar sem 1 er mesta ábyrgðin, hæfnin, menntunin/reynslan. 

Logib flokkunina getur einnig verið þægilegt að stofna og viðhalda í gegnum Select lista. 

Jafnlaunagreining BSI

Dálkalisti 

Setja þarf upp dálkalista fyrir jafnlaunavottunarskýrsluna. Ráðgjafar Origo geta aðstoðað við uppsetningu dálkalistans ef sendur er tölvupóstur á service@origo.is. 

Stillingar fyrir jafnlaunagreingingu BSI

Eftirfarandi stillingar þarf að setja inn í XAP > Gildi tengt jafnlaunaskýrslu BSI. Ef óskað er eftir aðstoð við þessar stillingarnar frá ráðgjöfum Origo skal senda póst á service@origo.is. 

Heiti gildisKódi(valkvæmt)Gildi
EqualPayKjarakannanirEf sett sem "false" þá er valmöguleikinn í hliðarvalmynd óvirkjaður og falinn
EqualPay.PayListIDKjarakannanirVísir þess dálkalista sem nota á sjálfgefið í valskjá
EqualPay.OrgCompanyIDKjarakannanirVísir þess fyrirtækis sem nota á sjálfgefið í valskjá



  • No labels