Tímon

Viðskiptavinir geta haft tengingu á milli Kjarna og Tímon. Ef óskað er eftir því að virkja slíka tengingu skal senda póst á service@origo.is.

Við uppsetningu á tengingunni þarf að samræma eftirfarandi atriði á milli kerfa svo þau geti talað saman:

  • Tryggja þarf að númer starfsmanns í Tímon sé launamannanúmer starfsmanns í Kjarna.
  • Hópar í Tímoni eru Skipulagseiningar í Kjarna - Starfsmenn Trackwell þurfa að endurnúmera hópa til samræmis við númer skipulagseininga í Kjarna.
  • Auðkenni deildar til launa eru Kostnaðarstöðvar í Kjarna -  Starfsmenn Trackwell þurfa að endurnúmera auðkenni deildar til samræmis við vísisnúmer kostnaðarstöðvar í Kjarna.
  • Samræma þarf ráðningartegund í Tímon við tegund ráðningar í Kjarna.
  • Samræma þarf starfsheiti í Tímon við stöðuheitin í Kjarna og bæta númerum stöðu í reitinn númer.

Stofnun og uppfærsla starfsmanns

Tengingin virkar þannig að þegar starfsmaður er stofnaður í Kjarna þá stofnast hann einnig í Tímon og þegar starfsmaður er uppfærður í Kjarna á uppfærist hann líka í Tímon. Hakað þarf að vera í svæðið "Starfsmaður í tímaskráningakerfi" í spjaldinu "Tenging innan fyrirtækis" svo starfsmaður flytjist/uppfærist á milli kerfanna.

Hættir starfsmenn

Til þess að starfsmenn merkist hættir í Tímon þegar þeir eru merktir hættir í Kjarna þarf að skrá þá við starfslok á ákveðna "Hættur" skipulagseiningu og "Hættur" stöðu í Kjarna. Þessi hættur staða/starfsheiti og hættur skipulagseining/hópur er skilgreindur í Tímon og eftir það merkjast starfsmenn hættir í Tímon frá þeim tíma sem þeir eru skráðir á þessa skipulagseiningu/stöðu í Kjarna.

Athugið að haka þarf í svæðið "Starfsmaður í tímaskráningakerfi" á hættur færslu starfsmanns í Kjarna til þess að hættur merkingin skili sér yfir í Tímon.

Innlestur frá Tímon yfir í Kjarna

Verið er að skoða sjálfvirkan bunkainnlestur frá Tímon yfir í Kjarna en í augnablikinu er innlesturinn framkvæmdur á eftirfarandi hátt:

Innlestur á viðveru eða frávikum úr Tímoni í Kjarna - er framkvæmdur í almennum bunkainnlestri.

Sá innlestur er í launahring, neðarlega hægra megin við Skoða.

Sjá nánari upplýsingar um bunkainnlestur hér.

Nýjar stöður og skipulagseiningar

Ef stofnaðar eru nýjar stöður og skipulagseiningar í Kjarna þarf handvirkt að stofna viðkomandi starfsheiti og hópa í Tímon.

Verk úr Kjarna yfir í Tímon

Hægt er að senda verk úr Kjarna í Tímon. Þegar færsla fyrir verk er vistuð flyst hún yfir í Timon, ef kveikt er á viðeigandi stillingum í Kjarna.. Einnig er til skipun til þess að senda allar færslur yfir (TMOrgWork.SendAll). Sú skipun er hugsuð til þess að flytja mörg verkefni í einu. Bæði er hægt að stofna og uppfæra færslur.