Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 10 Next »

Í grunnlaunaspjaldinu eru skráðar upplýsingar um launatöflu starfsmanns, greiðsluform og greiðslutíðni. Grunnlaunaspjaldið sækir upphæðir í launatöflur. Þegar launaliður t.d yfirvinna sem sækir upphæð í launatöflur er skráður í skráningu launa þá er upphæðin sótt í launatöflu starfsmanns út frá grunnlaunaspjaldinu.
Eingöngu ein færsla getur verið í gildi hverju sinni, en hinsvegar er hægt að setja færslur fram í tímann.

Athugið að við starfslok geta starfsmenn fengið laun þó svo að þeir séu hættir - svo framarlega sem grunnlaunaspjaldið sé opið á launatímabilinu.

Þegar grunnlaunaspjaldi er lokað birtist starfsmaður ekki lengur í launaskráningu.

Hægt er að velja um eftirágreidd eða fyrirframgreidd laun undir greiðsluform. Ef valið er „Eftirá" þá fá dagsetningar launafærslu sömu dagsetningu og skráð er í reitinn „Eftirá" í launaútborgun. Sama með „Fyrirfram" 

Ef valið er „Eftirá og fyrirfram" þá fær starfsmaður tvöföld laun á meðan spjaldið er í gildi og fá færslurnar sína hvora dagsetninguna. Afreiknaðar færslur verða líka tvöfaldar. 

Dæmi: Eftirágreiddur starfsmaður er fastráðinn og fær um leið að fara á fyrirframgreidd laun. Þessi mánaðamót fær hann því greidd tvöföld laun, annars vegar fyrir síðasta mánuð og hins vegar fyrir næsta mánuð. Grunnlaunaspjald starfsmanns er afritað frá og með mánaðamótum. Sjálfkrafa fær eldra spjaldið til dagsetningu, síðasta dag núverandi mánaðar. Nýja spjaldið fær frá dag fyrsta dag næsta mánaðar og skráður er til dagur síðasti dagur þess mánaðar. Um leið er valið greiðsluform „Eftirá og fyrirfram". Spjaldið afritað á ný og því gefin frá dagsetning fyrsti dagur þar næsta mánaðar. Í því spjaldi er valið greiðsluform „Fyrirfram" 

Undir flipunum álag og grunnlaunaflokkur er skráning á álagi skv. kjarasamningum ríkis og sveitarfélaga, annars vegar álagsprósenta og hins vegar viðbótar launaflokka vegna menntunar, símenntunar, tryggðar eða stjórnunarálags.  Ef skráður er grunnlaunaflokkur flyst hann upp í svæðið Launaflokkur ásamt samlagningu allra aukaflokka.

Breyting á grunnlaunaspjaldi

Ef breytingar verða á launakjörum starfsmanns, er núverandi færsla afrituð yfir á nýja dagsetningu og gildum breytt í nýrri færslu. Þannig geymist sagan yfir persónubundnar launahækkanir. Þetta gefur einnig möguleika á sjálfvirkum launaleiðréttingum ef sú þörf skýtur upp kollinum.

Athugið að nota ávallt aðgerðina Afrita í stað þess að smella á plúsinn og stofna nýja færslu. Það að afrita færslu minnkar handavinnu og dregur þannig úr líkum á innsláttaravillum.

Athugið að þegar slíkar breytingar verða að fylgja ávallt eftirfarandi vinnuferli:

  1. Afrita færslu.
  2. Breyta gildum.
  3. Vista færslu.
  4. Fríska gluggann.
  5. Geyma og loka.



  • No labels