Útbúið hefur verið vefgildi sem stýrir birtingu aukastafa í launasamþykkt á vef. Vefgildið heitir Kjarni.Web.PayEmployeeApprove.Digits og er fjöldi aukastafa skráður í “Gildi”
Litum á mælaborðum fyrir Mannauð og Ráðningar á upphafssíðu Kjarnavefs var breytt í samræmi við hönnunarstaðal Kjarna.
Síu hefur verið bætt við dálkinn “Staða” í launaþróunarskýrslu þannig að hægt sé að skoða einungis starfsmenn sem gegna ákveðinni stöðu. Staða/stöður sem skoða á eru valdar og smellt á staðfesta til að fá nýja sýn upp.
Útbúin hefur verið launaáætlunar skýrsla á vef fyrir stjórnendur sem er aðgengileg í upphafsvalmynd áætlunar. Sjá nánar hér: Launaáætlun á vef
Röðun á hæfni var breytt í Teymið mitt þannig að nú birtist nýjasta skráða hæfnin efst í listanum undir hæfni.
Starfsaldur undir Teymið mitt á Kjarna vef var ekki að birtast rétt þegar kveikt var útreikningi útfrá greiddum stöðugildum. Þetta hefur verið lagfært og báðar starfsaldurs aðferðir birtast rétt á vef.
Bætt hefur verið við flís fyrir Tenging innan fyrirtækis þar sem hægt er að sjá flestar þær upplýsingar sem skráðar eru í spjaldið. Auk þess er hægt að sjá fyrri færslur og framtíðarfærslur. Hægt er að fela þessa flís og ef óskað er eftir því skal senda beiðni á service@origo.is
Núna kemur hlekkur á starfslýsinguna undir Teymið mitt á flísinni Tenging innan fyrirtækis. Starfslýsing birtist fyrir núverandi virka færslu.
Álagi var bætt við grunnlaunaflísina í Teymið mitt. Þetta eru svæðin Símenntunarálag, Menntunarálag, Stjórnunarálag og Tryggðarálag sem birtast ef eitthvað gildi er skráð í svæðin.
Undir Teymið mitt hefur verið bætt við svæðunum Persónulegt netfang og Farsími 2. Eins og önnur svæði undir Teymið mitt sem koma úr starfsmannaspjaldinu þá birtast þau bara ef skráð er í þau.
Bætt hefur verið við virkni að núna er hægt að smella á starfsmann í starfsmannalistanum og fá upp frekari upplýsingar um starfsmanninn. Er þetta sama sýn og er fyrir starfsmenn í Teymið mitt.
Starfsmannalistinn var uppfærðum og síum og leit bætt við dálka.
Kennitölu hefur verið bætt við undirskrift í rafrænum undirritunum.
Þegar rafrænni undirritun er lokið þá er hægt að senda tölvupóstur með upplýsingum um þann starfsmann sem var að undirrita. Áður var bara nafn starfsmannsins sem kom fram í tölvupóstinum en kennitölunni hefur núna verið bætt við. Ef þið óskið eftir því að fá þessa breytingu inn þarf að senda beiðni á service@origo.is