Hér er stillt hvernig bókunarskrá skal líta út. Hvaða víddir eru notaðar. Í hvaða röð svæðin koma og hvort skrá sé skipt með semikommu eða tab.
Skilgreiningar bókunarskrá eru stofnaðar og eytt með tökkunum í tækjaslánni. ATH! þetta á við heildarskilgreiningu, ekki stakar línur/dálkar innan skilgreiningar. Línur/dálkar innan skilgreiningar eru stofnaðar og þeim eytt með svörtum plús/mínus neðst í listanum við "scroll bar"
Lengst til vinstri er valið hvaða skilgreiningu bókunarskrá vinna skal með, en í boði eru Laun, Skuldbindingar og Áætlun.
Hægra megin að ofan er fyllt inn stjórngildi skráarinnar og þar fyrir neðan eru dálkar skráarinnar stilltir.
Eftirfarandi svið er hægt að stilla í stjórngildum bókunarskrá (Tækniheiti: PayBookFile):
Eftirfarandi svæði er hægt að stilla í þegar kemur að dálkum bókunarskrárinnar (Tækniheiti: PayBookFileColumn), lýsingarnar hér fyrir neðan eiga við um hverja línu sem unnið er úr frá valdri bókun Kjarna:
Sniðmát - Býðir uppá að setja alltaf auka texta utan um gildið sem skrifað er. Staðgengill fyrir ákvarðaða gildið er {0}.
Eigindið PeriodDate hefur sérstaka eiginleika ef það er valið sem gildi. Það er útreiknað og setur inn bókunardagsetningu miðað við hvort viðkomandi hefur greiðsluformið fyrirfram eða eftirá.
Til að þurfa ekki að muna öll mögulega tækniheiti sem hægt er að setja í Gildi svæðið þá er hægt að smella á vallistaörina í því svæði til að fá lista yfir þau og velja.
Hægt er að keyra út prófun á bókunarskrá með því að ýta á takkann í tækjaslánni. Upp kemur valskjár sem leyfir notanda að para saman skilgreiningu á bókunarskrá og útborgun og keyra prófun á hvernig skráin kemur út. Innihald skráarinnar sem myndast er birt í samtalsglugga en ekki geymd á disk við slíka prófun.
Þrjú Stillingar>Gildi eru notuð til að tengja skilgreiningar við sendingu bókunar hafa þær eftirfarandi nöfn:
Meiri upplýsingar um sendingu bókunar má finna hér: Bókun Launa.
Hægt er að tengja öll þrjú gildin við ákveðið fyrirtæki með því að skeyta punkti og vísi þess fyrir aftan gildið, t.d. "Xap.PayBook.SendAction.3". Hér mun þessi skilgreining aðeins eiga við fyrirtæki 3.
Tenging skilgreiningar við Stillingar gildið er gerð með því að setja Gildi sem PayBookFileCollect.Action.[vísir skilgreiningar], t.d "PayBookFileCollect.Action.2".
Hægt er að stýra hvaða stafasett er notað í skránni með því að bæta við gildið punkti og heiti stafasettsins, t.d. "PayBookFileCollect.Action.2.1252" og "PayBookFileCollect.Action.2.ISO-8859-1". Nánari upplýsingar um stafasett má finna hér https://docs.microsoft.com/en-us/dotnet/api/system.text.encoding?view=netframework-4.7.1. Mælt er með að þetta sé aðeins notað ef sjálfgefna stafasettið virkar ekki.