Bóka laun

 Til að bóka laun er smellt á bóka hnappinn í launahringum. Til að yfirfara bókun áður bókun er send er smellt á Bókhald vinstra megin við Bóka hnappinn. Þá kemur upp aðgerðarlína bókunar.




Efri hlutinn af aðgerðarlínunni eru aðgerðir sem tengjast bókun.
Neðri hnapparnir eru flýtileiðir í stofnupplýsingar.

Þegar smellt er á bóka kemur upp valskjár þar sem forskráðar eru allar upplýsingar um þá útborgun sem á að bóka.

Til að bóka laun er smellt á Bóka hnappinn neðst til hægri á valskjánum.

Eftir að búið er að loka útborgun og laun, áætlun eða skuldbinding eru bókuð er bókuninni læst til að koma í veg fyrir að óvart sé bókað aftur síðar.

Undir "Laun" í miðjum launahring er flipinn "Bókun og skuldbinding" og þar kemur hak í "Laun bókuð" fyrir laun og áætlun en í "Skuldbinding bókuð" fyrir skuldbindinguna.

Hægt er að setja hak í svæðin ef notandi vill læsa bókun áður en útborgun er lokað.


Ef bókunaraðgerð er framkvæmd aftur eftir að hakið er komið í bókunarsvæðið þá kemur upp skilaboðagluggi þar sem skrá þarf inn lykilorðið "bóka aftur" til að framkvæma bókunina aftur.



Með því að smella á Skoða í aðgerðarlínunni opnast einfaldur listi með upplýsingum úr launabókuninni.





Þegar smellt er á greina opnast sami listi í greiningarmynd (pivot) þar sem hægt er að vinna frekar með bókunarupplýsingar.



Þegar smellt er á senda bókun opnast valskjár þar sem upplýsingar um valda útborgun eru forskráðar í. Þar fyrir neðan er valinn sá staður sem bókunarskjal á að vistast á og nafnið á skránni er sett inn þar fyrir neðan.  Skráarnafn getur bæði verið txt eða csv.

Þegar smellt er á senda vistast bókunarskjal á þann stað sem valinn var sem skráarslóð í valskjánum.