Spjöld í launakerfi
|
|
---|---|
| Í launahlutanum er haldið utan um allar grunnupplýsingar starfsmanna í spjöldum þar sem hvert spjald heldur utan um ákveðnar upplýsingar. Það að geyma ákveðnar upplýsingar í spjöldum gerir kerfinu kleift að geyma upplýsingarnar á mismunandi dagsetningum. Það er því hægt að skrá upplýsingar fram í tímann og ekki þarf að muna eftir að skrá gögn þegar þar að kemur. Þetta einfaldar líka samanburð á öllum gögnum á milli ára. Spjöld starfsmanna eru aðgengileg í gegnum starfsmannatréð.
Athugið að til að starfsmenn komi fram í launaskráningu, þurfa eftirfarandi spjöld að vera í gildi á tímabili launaútborgunar:
Dagsetningar þessara spjalda eiga að vera þær sömu og þær þurfa að vera innan launatímabils útborgunar til þess að fastir liðir séu sóttir og laun reiknuð.
Spjaldið Intellecta er hægt að birta í listanum með því að setja inn eftirfarandi stillingu í Stillingar → Gildi Intellecta - true (ef að fyrirtæki tekur þátt í kjarakönnun Intellecta) |