/
Stéttarfélag

Stéttarfélag

 

 

 

 

image-20250124-110729.png

 

Í spjaldinu stéttarfélög er skráð inn það félag sem starfsmaður greiðir félagsgjöld til. Áður en hægt er að skrá í spjaldið þarf að vera búið að stofna stéttarfélögin í kerfinu. 

Ef starfsmaður greiðir í fleiri félög, myndast listi í svæðinu hægra megin. Smellt er á línu til að fá nánari upplýsingar um það félag. Ef bæta þarf við félagi er eldri lína afrituð og færslu breytt. Ef eyða þarf línu (félagi) þá er línan valin í listanum og smellt á rauðan mínus í tækjaslá og breytingin vistuð.

image-20250124-110014.png

 

Með því að ýta á punktana þrjá hjá Stéttarfélag nr. opanst listi yfrir þau stéttarfélög sem eru í kerfinu. Einnig er hægt að slá inn númer félagsins.

image-20250124-110504.png

 

Til að  skoða forsendur útreiknings í viðkomandi stéttarfélagi er hægt að halda niðri  Ctrl hnappinum og smella punktana 3 við númer félagsins, þá opnast spjald viðkomandi stéttarfélags. Veljið flipann ‘Launaútreikningur

image-20250124-110745.png

 

Gildir frá   -  Gildir til

Til þess að færsla í spjaldi launamanns reiknist í útborguninni þarf hún að vera í gildi einhverntíman í bókunarmánuði útborgunar.  Bókunarmánuður útborgunar ræður því hvaða færsla í spjaldi er notuð.  Ef verið er að leiðrétta laun afturvirkt þá reiknast í það félag sem starfsmaðurinn er í þegar leiðréttingin er greidd, færsludagsetningar hafa þá ekki áhrif.

Ef hins vegar á að reikna í sama félag og var í gildi á tímabilinu sem verið er að leiðrétta er hægt er að setja inn stillingu í Stillingar - Gildi   Xap.DontUseBookDate4Cards og true í gildi 




 

 

Related content