Bóka
Myndun bókunarskráar |
|
Til að bóka laun er smellt á bóka hnappinn í launahringum. Til að yfirfara bókun áður bókun er send er smellt á Bókhald vinstra megin við Bóka hnappinn. Þá kemur upp aðgerðarlína bókunar. | |
Efri hlutinn af aðgerðarlínunni eru aðgerðir sem tengjast bókun. | |
Þegar smellt er á bóka kemur upp valskjár þar sem forskráðar eru allar upplýsingar um þá útborgun sem á að bóka. Til að bóka laun er smellt á Bóka hnappinn neðst til hægri á valskjánum. | |
Eftir að búið er að loka útborgun og laun, áætlun eða skuldbinding eru bókuð er bókuninni læst til að koma í veg fyrir að óvart sé bókað aftur síðar. Undir "Laun" í miðjum launahring er flipinn "Bókun og skuldbinding" og þar kemur hak í "Laun bókuð" fyrir laun og áætlun en í "Skuldbinding bókuð" fyrir skuldbindinguna. Hægt er að setja hak í svæðin ef notandi vill læsa bókun áður en útborgun er lokað. | |
Ef bókunaraðgerð er framkvæmd aftur eftir að hakið er komið í bókunarsvæðið þá kemur upp skilaboðagluggi þar sem skrá þarf inn lykilorðið "bóka aftur" til að framkvæma bókunina aftur. | |
Með því að smella á Skoða í aðgerðarlínunni opnast einfaldur listi með upplýsingum úr launabókuninni. | |
Þegar smellt er á greina opnast sami listi í greiningarmynd (pivot) þar sem hægt er að vinna frekar með bókunarupplýsingar. | |
Þegar smellt er á senda bókun opnast valskjár þar sem upplýsingar um valda útborgun eru forskráðar í. Þar fyrir neðan er valinn sá staður sem bókunarskjal á að vistast á og nafnið á skránni er sett inn þar fyrir neðan. Skráarnafn getur bæði verið txt eða csv. Þegar smellt er á senda vistast bókunarskjal á þann stað sem valinn var sem skráarslóð í valskjánum. Boðið er uppá vefþjónustutengingar við BC/NAV og SAP bókhaldskerfin og þá sendist bókunarskráin beint yfir í bókhaldskerfin og ekki þarf að skrifa í skrá. Hægt er að fá frekari upplýsingar um þessar vefþjónustur með því að senda póst á hjalp@corus.is
| |
Skuldbinding |
|
| Ferlið við að mynda bókunarskrá fyrir skuldbindingu er það sama og fyrir laun, en þar skal velja Ávinnsla í miðjum launahring. |
| Þar er farið í Bóka. |
| Kjarni bókar ávallt heildarskuldbindingu fyrirtækisins. Því þarf alltaf að bakfæra fyrri skuldbindingarfærslu um leið og ný er bókuð. |
| Dæmi um bókun skuldbindingar. |