Ráðningar á vef 20.4.1

Viðbætur í dálkalista í Lista sjónarhorni.

APPAIL-6908

Bætt var við dálkinum Stofnað þann í Lista sjónarhorninu. Nú er hægt að sjá í lista hvenær umsóknir voru stofnaðar og hægt að raða þeim, þ.e. láta nýjustu eða elstu umsóknirnar birtast efst.

Bætt við stöðu á stöðuborð fyrir umsóknir með enga stöðu.

APPAIL-6998

Það kom upp dæmi þess að ný umsókn fékk ekki sjálfkrafa á sig stöðuna Ný umsókn þegar sótt var um í gegnum umsóknarvefinn og birtist þar af leiðandi ekki á stöðuborði. Nú hefur verið bætt við stöðu á stöðuboð fyrir umsóknir með enga stöðu svo allar umsóknir munu nú birtast á stöðuborði.

Fylgiskjöl opnast í stærri glugga.

APPAIL-7004

Glugginn sem opnast þegar skoðuð eru fylgiskjöl umsækjenda úr yfirliti þeirra á ráðningarvef hefur verið stækkaður.

Teljara bætt við eftir síun í umsækjandalista undir Umsóknir og svör.

APPAIL-7003

Í lista-sjónarhorni, umsóknir og svör, við úrvinnslu umsókna hefur verið bætt við teljara sem birtir fjölda umsókna eftir að listi hefur verið síaður.

Teljara bætt við neðst á síðunum; Auglýsingar, Umsóknir og svör og umsækjendur.

APPAIL-7001