Mannauður 21.6.1
Stórafmæli/Starfsafmæli - gildi í lista
Eftirfarandi dálkar voru að koma tómir í skýrslunum fyrir stórafmæli og starfsafmæli. Þetta hefur verið lagað. Gildin eru: staða, skipulagseining, svið, yfirmaður, póststöð aðseturs, staðsetning, yfirstaða og þjóðerni.
Starfsmannavelta - lagfæring á talningu Starfsmenn í upphafi tímabils
Í útgáfu 21.5.1 var gerð lagfæring á útreikningi fyrir starfsmannaveltuna að ef starfsmaður hóf störf á upphafsdegi tímabils var hann að telja bæði til Byrjaðir á tímabili og Starfsmaður í upphafi tímabils. Því var breytt og telur starfsmaður sem byrjar á upphafsdegi tímabils bara í Byrjaðir á tímabili. Við þessa breytingu fóru starfsmenn sem hættu á upphafsdegi tímabils að hætta að telja í Starfsmaður í upphafi tímabils. Það hefur verið lagað, þ.e. starfsmaður sem hættir á upphafsdegi tímabils telur bæði í Hættir á tímabili og Starfsmaður í tímabils.
Bæta vali í lista undir Mannauður
Bætt var inn vali í “Velja dálka” í eftirfarandi lista undir Mannauður:
Grunnlaun - Fjöldi vinnustunda á dag og fjöldi vinnustunda á mánuði
Orlof - Orlofsréttur
Vinnutími - Stéttarfélag nr. og Stéttarfélag