Viðvera 23.4.1

Skrá tíma - laga athugasemd þegar skráning fer yfir 24 klst

APPAIL-10260

Ef skráðir tímar fara yfir 24 klst þarf að velja tímabil. Skilaboð þess efnis voru löguð og gerð skýrari.

Dálkum bætt í lista á Kjarna vef

APPAIL-10159

Í listanum Viðvera > Töflusýn hefur verið bætt við að núna er hægt að velja inn dálkana Skipulagseining, Tímastjóri og Yfirmaður.

Flytja tíma sýni heiti á launalið

APPAIL-10164

Núna birtist heiti launaliðar í stað númers þegar farið er í Flytja tíma.

Beiðnir sýnilegar þrátt fyrir að dagsetning sé liðin

APPAIL-10150

Virknin var þannig að ef dagsetning var liðin á beiðni þá rann hún út og yfirmaður gat ekki samþykkt beiðnina. Þessu hefur verið breytt og birtast núna beiðnir áfram undir Óafgreiddar beiðnir þrátt fyrir að dagsetning sé liðin. Með þessari breytingu gætu eldri beiðnir sem runnu út án samþykktar farið að birtast yfirmanninum. Þarf því að taka afstöðu til þessara eldri beiðna. Passa verður að ef verið er að nota Kjarna viðveru að vera með eldra tímabil læst til að tímar fari ekki að stofnast í viðveru fyrir tímabil sem búið er að loka þegar eldri orlofsbeiðnir eru samþykktar. Ef óskað er eftir aðstoð við að læsa tímabili eða frekari upplýsingar um þessa breytingu skal senda beiðni á service@origo.is