Útgáfa 24.4.2
Starfsmannavefur - Tímabil ekki að birtast rétt í Inni/úti
Tímabil var ekki að birtast rétt í Inni/úti þegar mánuður innihélt 31. dag. Þetta var lagað.
Viðvera - Lagfæring á skráningu á tímum á Kjarna vefnum
Þegar verið er var að skrá tíma á Kjarna vefnum kom alltaf sjálfkrafa dagurinn í dag óháð því hvaða dagur hafði verið valinn. Þetta hefur verið lagað.
Kjarni vefur - Grunnlaunaflís í teymið mitt
Flísin Grunnlaun í Teymið mitt var ekki að birta rétta upphæð ef búið var að hækka launatöflu fram í tímann. Þetta hefur verið lagað.
Ráðningar (nýju) - Umsóknarfrestur til og með
Í nýrri útgáfu af ráðningunum var umsóknarfrestur ekki til og með. Þetta hefur verið lagað.