Vandamál við innskráningu á starfsmannavef

Ef starfsmaður getur ekki skráð sig inn á starfsmannavef þá þarf að ganga úr skugga um að eftirfarandi atriði séu í lagi:

  1. Starfsmaður sé til sem notandi í Kjarna
  2. Starfsmannavefshlutverk sé skráð á notandann
  3. Notandanafn starfsmanns sé skráð á starfsmanninn í spjaldinu Starfsmaður
  4. Starfsmaður og notandi séu tengdir saman í töflunni EmployeeXapUser.List sem aðgengileg er með því að slá inn skipunina EmployeeXapUser.List inn í skipanalínuna neðst í vinstra horni Kjarna og smella á enter. 
  5. Að starfsmannaspjald starfsmanns sé örugglega í gildi

Ef eitthvað af ofangreindum atriðum vantar þá þarf að lagfæra það og keyra svo skipunina QdataUserGlobals.Clear. Upp kemur gluggi eins og sá hér að neðan. Þar er smellt á Áfram og eftir það ætti viðkomandi notandi að geta skráð sig inn á starfsmannavefinn. 

Ath. ef starfsamaður getur skráð sig inn á starfsmannavefinn en getur ekki séð gögn sem hann ætti að sjá þarf einnig að ganga úr skugga um að spjaldið Launamaður sé í gildi.