Innskráning og aðgangur að starfsmannavef

Innskráning

Tvær leiðir eru til að skrá sig inn á vefinn, annars vegar með SSO og hins vegar með notandanafni og lykilorði úr Kjarna.

Ef fyrirtæki eru með Single Sign On (SSO) innskráningu þá þarf notandi að logga sig inn með netfanginu sínu. Netfangið á bakvið notandann í Kjarna þarf að vera það sama og UPN-ið starfsmannsins í AD (Active Directory), annars getur notandi ekki skráð sig inn.

Ef fyrirtæki eru ekki með slíka tengingu þarf notandi að logga sig inn með notandanafni og lykilorði sem notandi fær í tölvupósti þegar notandi er stofnaður í Kjarna.


Að veita aðgang að starfsmannavefnum

Allir starfsmenn þurfa að vera notendur í Kjarna með hlutverkið Starfsmannavefur svo þeir geti loggað sig inn á starfsmannavefinn og séð upplýsingar um sig.

Upplýsingar um hvernig stofna á notanda í Kjarna er hægt að sjá hér: Stofna notanda og gleymt lykilorð

Einnig er hægt að stofna marga starfsmenn sem notendur í einu, sjá hér: Stofna marga notendur

ATH ef að fyrirtæki eru að nota Single sign on þarf ekki að senda starfsmönnum sérstakt lykilorð í Kjarna. 

Tenging milli notanda og starfsmanns

Til þess að starfsmaður geti skráð sig inn á starfsmannavefinn þarf að vera tenging til staðar á milli starfsmannsins og notanda hans. Er þessi tenging skráð í EmployeeXapUser.List. Þessi tenging myndast sjálfkrafa þegar notandi er stofnaður svo lengi sem notandanafn starfsmannsins sé skráð í starfsmannaspjaldið.
Aftur á móti getur verið að þessi tenging sé ekki til staðar hjá eldri viðskiptavinum og getur því þurft að handskrá þessa tengingu í EmployeeXapUser.List. Hægt er að komast í EmployeeXapUser.List með því að slá það inn í skipanalínuna neðst í vinstra horni Kjarna og smella á enter. 

Sjálfvirk stofnun notanda

Hægt er að setja inn stillingu þannig þegar starfsmaður er stofnaður í Kjarna og notendanafnið skráð í spjaldið Starfsmaður að þá stofnist hann sem notandi og fær hlutverkið Starfsmannavefur. Mælt er með því að setja inn þessa stillingu ef starfsmenn eiga að fá strax aðgang að starfsmannavefnum þegar þeir hefja störf. Ef óskað er eftir því að fá þessa stillingu inn þarf að senda beiðni á service@origo.is 

Nánari upplýsingar má sjá hér: Notandi stofnaður sjálfkrafa þegar starfsmaður er stofnaður