Starfsmannamyndir

Hægt er að birta myndir af starfsmönnum í starfsmannaspjaldinu og eru þrjár leiðir til þess:

  1. Myndir vistaðar á vefslóð - vefslóðin þarf að vera opin. 

  2. Myndir vistaðar í möppu/drifi - mappan þarf að vera opin öllum starfsmönnum

  3. Myndir vistaðar í viðhengjaspjald starfsmanns - þurfa að vera vistaðar með viðhengjategundinni Mynd

Ef myndirnar eru sóttar á vefslóð eða í möppu þurfa þær að vera vistaðar með heitinu kennitala (ath. ekki með bandstriki), notandanafni eða netfangi. Tækniheiti þessara gilda er síðan sett í stillinguna fyrir myndirnar:

  • Kennitala - EntityNR

  • Notendanafn - UserName

  • Netfang - EmailWork

Ef mynd er vistuð í viðhengjaspjald starfsmanns

  • Ef mynd er vistuð í viðhengjaspjaldi starfsmanns og vefslóð er í stillingu fyrir starfsmannamyndir þá birtast myndir úr vefslóðinni. 

  • Ef mynd er vistuð í viðhengjaspjaldi starfsmanns og mappa er í stillingu fyrir starfsmannamyndir þá birtast myndir úr möppunni í client en myndir úr viðhengjaspjaldi birtast á starfsmannavef og Kjarna vef. Vefirnir geta ekki birt myndir sem vistaðar eru í möppu (leið nr. 2).

  • Ef mynd er vistuð í viðhengjaspjaldi starfsmanns og stilling er ekki inni fyrir starfsmannamyndir þá birtast myndir úr viðhengjaspjaldi.

Stilling fyrir myndir er Xap.EmployeeMaster.ImagePath og er sett undir Kjarni >Stillingar> Gildi

Á skjámyndinni hér fyrir neðan eru myndir vistaðar undir notandanafni.  (Þannig að ef myndir eru t.d. vistaðar undir kennitölu þarf að vera EntityNR í staðinn fyrir UserName í slóðinni). Efri stillinging er fyrir möppu á S-drifi og seinni stillinging er fyrir vefslóð. Ekki er hægt að vera með stillingu fyrir bæði vefslóð og möppu heldur þarf að vera með aðra hvora.

 

Hér er mynd vistuð í viðhengjaspjaldi starfsmanns á tegund skjals = Mynd.