Samþykki starfsmanns
Hægt er að setja inn ýmsar "spurningar" sem birtast á starfsmannavef þar sem hægt er að fá samþykki starfsmanns við þessum atriðum.
Stillitafla fyrir spurningarnar er aðgengileg í kerfisvalmynd undir Stillingar > Stillitöflur > Samþykki.
Það er hægt að skilgreina eftirfarandi atriði eftir því sem við á:
- Þann texta sem á að birtast á starfsmannavefnum (varðandi form á texta sjá neðar Form á texta)
- Tækniheiti þess spjalds sem á að uppfærast við svarið
- Tækniheiti og gildi þess svæðis sem á að uppfærast við svarið
- Frá og til dagsetningu á það spjald sem uppfærist við svarið.
- Netföng þeirra aðila sem eiga að fá tölvupóst þegar starfsmaður staðfestir svar á starfsmannavef
- Sniðmát fyrir þann texta sem á að sendast í tölvupósti
- Hlekk á vefsíðu sem inniheldur frekari upplýsingar, t.d. hlekkur á síðu í starfsmannahandbók
- Viðhengjategund ef starfsmaður á að geta vistað viðhengi með svarinu
- Ráðningarmerkingu, ef spurningin á bara að birtast hjá starfsmönnum með ákveðnar ráðningarmerkingar
- Tegund ráðningar, ef spurningn á bara að birtast hjá starfsmönnum með ákveðnar tegundir ráðningar
- Virkt - ef hakað er við þá birtist spurning á starfsmannavef m.v. þær stillingar sem skilgreindar eru á spurningu en spurning birtist ekki ef hakið er tekið úr
Starfsmenn sjá spurningar birtast á starfsmannavef og geta svarað þeim þar.
Svörin vistast á starfsmenn í spjaldið Samþykki sem aðgengilegt er í listanum Samþykki undir Kjarni > Mannauður > Samþykki.
Form á texta
Hægt að forma þann texta sem birtist á síðunni Samþykki á starfsmannavef. Hægt er að nota öll helstu html tög, t.d. eftirfarandi:
- <br/> fyrir greinaskil
- <b></b> fyrir feitletrað
- <i></i> fyrir skáletrað
Ef bæta á greinaskilum í texta þá er <br/> bætt fyrir aftan þann texta sem greinaskilin eiga að koma á eftir,t.d. Á eftir þessum texta eiga að koma greinaskil.</br>. Ef feitletra eða skáletra á texta þá eru viðeigandi tákn sett sitthvoru megin við textann, t.d. <b>Þessi texti væri þá feitletraður</b>