Starfsmaður

Í spjaldinu starfsmaður eru skráðar allar grunnupplýsingar um viðkomandi starfsmann. Upplýsingum um starfsmann er viðhaldið í þessu spjaldi, fyrir utan starfsaldur sem reiknast út frá dagsetningum og færslum í spjaldinu tenging innan fyrirtækis og færslum í spjaldinu starfsaldur. 

Ef fyrirtæki eru með tengingu milli Kjarna og Þjóðskrár uppfærast lögheimili starfsmanna, þjóðerni og kyn í þessu spjaldi til samræmis við Þjóðskrá þegar keyrð er aðgerðin Þjóðskrá - Uppfæra starfsmenn undir flipanum Aðgerðir. Aðsetri er hinsvegar aðeins hægt að breyta handvirkt. 

Undir flipanum Nánasti aðstandandi er möguleiki á að skrá tvo aðila:

Í Moodup og Active Directory tengingunum er hægt að undanskilja ákveðna hópa starfsfólks út frá ráðningarmerkingum og/eða tegundum ráðninga. Sumir viðskiptavinir vilja til viðbótar geta undanskilið tiltekna starfsmenn. Til þess að gera það er hægt að haka við svæðin “Ekki í Moodup” og “Ekki í Active Directory” í flipanum “Tengingar”, eftir því sem við á.

image-20250212-152124.png

Ef birta á starfsmannamyndir í starfsmannaspjaldi: Starfsmannamyndir

 

 

Related content