Laun 3.8.5
Listinn Grunnlaun yfirfarinn
Listinn Grunnlaun var yfirfarinn og bætt við svæðum í hann sem ekki voru þar áður. Það voru svæði eins og Aðeins í áætlun, Réttur til biðlauna, Menntunarflokkar, Starfsaldursflokkar o.fl.
Select listi fyrir Lífeyrissjóði og stéttarfélög - viðbætur
Nú er hægt að breyta beint í select lista eftirfarandi svæðum
- Tegund lífeyrissjóðs (númerasvæði)
- Tegund og tímabil skilagreina, bæði lífeyrissjóða og stéttarfélaga,
Sjá tengil í handbók : Lífeyrissjóðir
Hraða á lookup
Breytt var þeim aðferðum sem notaðar eru við starfsmannaleit þegar eftirfarandi spjöld eru opnuð í lista.
Þessi aðferð er mun hraðvirkari.
- Vinnutími
- Lífeyrissjóðir
- Stéttarfélög
- Grunnlaun
- Orlof
Debet bókhaldslykill í fyrirtækjalista
Debet bókhaldslykill sýnir nú aðeins númer bókhaldslykils, ekki uppsetninguna á lyklinum eins og áður var.
Kyni bætt við í dálkalista
Nú er hægt að velja Kyn inn í dálkalista.
Aukastöfum fækkað í listanum Orlofsstaða
Þegar listinn Orlofsstaða var keyrður upp kom hann með fjöldi aukastafa. Þeim var fækkað þannig að hann kemur staðlað nú með tvo aukastafi.
Breytt nöfnum á svæði og undirsvæði í launalistum
Gildin svæði og undirsvæði (úr tenging innan fyrirtækis) hétu Mannauðssvæði og Mannauðsundirsvæði í launalistum. Þessu var breytt í Svæði og Undirsvæði til samræmis við spjaldið Tenging innan fyrirtækis.
Bæta við vallista yfir launahópa í Stofna útborgun
Nú kemur listi yfir þá launahópa sem til eru þegar smellt er á leitina.
Verk bætt við í hliðarvalmynd
Verk hefur verið bætt við í hliðarvalmynd undir Kjarni > Laun > Listar og stofnskrár.
Skráning skattprósentu
Innsláttur á hlutfalli skattprósentu hefur nú verið einfaldaður.
Skilagreinar í tölvupósti
Bætt hefur verið við skoðun á tegund iðgjalda þegar skilagreinar eru sendar í tölvupósti.
Þetta kemur í veg fyrir rugling ef stéttarfélag og lífeyrissjóður eiga sama stofnnúmer, eins og t.d. Stéttarfélag 135 og Lífeyrissjóður 135
Launaleiðréttingar - reikningur fastra iðgjalda/mótframlaga
Þegar laun eru leiðrétt aftur í tímann, þá á ekki að taka með fastar upphæðir í stéttarfélög eða lífeyrissjóði. Þessar upphæðir breytast ekki þó laun breytist.
Um er að ræða launaliði sem merktir eru með eftirfarandi reiknireglum:
1430 Fast iðgjald
1440 Fasti mótframlag
1330 Iðgjald fasti
1331 Iðgjald fasti séreign
1340 Mótframlag fasti
1341 Mótframlag fasti séreign
Fjársýsluskattur
Bætt var við reikni 520 fyrir fjársýsluskatt.
Þau fyrirtæki sem þurfa að greiða fjársýsluskatt, þurfa að bæta þessum reikni á alla launaliði á þá launaliði sem eru með reikni 500 Tryggingagjald og skrá prósentu í spjaldið skattprósentur.
Listinn orlofsstaða
APPAIL-3696
Þegar listinn orlofsstaða er keyrður upp kemur upp rétt orlofsár í valskjánum.
Númer kostnaðarstöðvar
Svæðið kostnaðarstöð var formattað eins og krónutala. Það hefur nú verið lagað.
Launabókun - Coda
Bókhaldsforrit fyrir Coda, fær Xap gildið "Xap.PayBook.SendAction" sem "PayBookSendCoda.Action".
Uppsetning bókhaldslykils er t.d.: 60010;<kostnaðarstöð>;<staðsetning>;<staða>;<verk>;;<skipulagseining>;IHLAUN;ISK;
Bunkainnlestur - launaliður ekki til
Ef launaliður sem skráður er í innlestrarskjal er ekki til í Kjarna, þá lendir sá launaliður á villulista, en stoppar ekki innlestur annarra gagna.
Hvítt x á rauðum grunni er sett fyrir framan númer launaliðar á villulista til auðkenningar á villu.
Staðgreiðslutegundir
Hreinsað var til í staðgreiðslutegundum sem í boði eru við stillingar á launaliðum.
Eftirfarandi tegundir eru nú í boði:
- Óskilgreint - notað ef launaliður er ekki staðgreiðsluskyldur.
- Almennt - öll laun og hlunnindi sem eru staðgreiðsluskyld, að frátölum dagpeningum og bifreiðastyrk.
ATH! þetta á líka við staðgreiðsluskyldar safnfærslur eins og fæðis- eða húsnæðishlunnindi. - Ökutækjastyrkjur - staðgreiðsluskyldur ökutækjastyrkur.
ATH! ef ekki er greidd staðgreiðsla af bifreiðastyrk, er hann merktur Óskilgreint. - Dagpeningar - staðgreiðsluskyldir dagpeningar.
ATH! ef ekki er greidd staðgreiðsla af dagpeningum, eru þeir merktir Óskilgreint. - Bifreiðahlunnindi - staðgreiðsluskyld bifreiðahlunnindi.