Starfsmannavefur 19.1.1
Styrkir og Heilsuefling á starfsmannavef
Upplýsingum um Styrki og Heilsueflingu hefur verið bætt við starfsmannavefinn. Hér er að finna nánari upplýsingar um þessa virkni. Athugið að þessar upplýsingar birtast sjálfkrafa eftir útgáfu 19.1.1 og setja þarf inn stillingar til þess að fela þessa virkni ef ekki er vilji fyrir því að birta hana. Stillingin Employee.Web.Dashboard stýrir því hvort flísar með þessum upplýsingum birtist á upphafsvalmynd og stillingin Employee.Web.Hide.BenefitAgreements felur þessar upplýsingar undir Valmynd. Þessar stillingar eru settar inn í Vefgildi í kerfisvalmynd.
Til að notendur sem eingöngu eru með starfsmannavefshlutverkið fái aðgang að þessum upplýsingum þarf að uppfæra hlutverkið fyrir starfsmannavefinn. Senda þarf beiðni á service@origo.is með ósk um breytingu á hlutverki.
Starfsmannaleit skili niðurstöðum þótt millinafn sé ekki í leit
Ef starfsmaður heitir tveimur nöfnum, fornafn og millinafn, þá kom hann ekki upp í niðurstöðum ef leitað var eftir fornafni og eftirnafni heldur bara þegar leitað var eftir fornafni, millinafn og eftirnafni. Þetta hefur verið lagað.
Orlofsréttur á starfsmannavef
Ef starfsmaður var með fleiri en eina færslu í orlofsspjaldinu sínu þá var elsta færslan birt sem orlofsréttur á starfsmannavef en ekki nýjasta færslan. Þetta hefur verið lagað þannig að nú birtist sá orlofsréttur af þeirri færslu sem tilheyrir núverandi orlofsári.
Textabreytingar á orlofsupplýsingum
Textabreytingar voru gerðar á upplýsingum um orlofsstöðu á starfsmannavef. Nú er hefur ártalinu verið bætt við dagsetningu.
Orlofsstaða á ensku
Þegar starfsmannavefurinn er á ensku var textinn með upplýsingum um orlofsstöðuna að fara í tvær línur. Það hefur verið lagfært og nú birt í einni línu.
Frammistöðumat - ensk þýðing
Þegar starfsmannavefurinn er á ensku þá vantaði inn enska þýðingu á frammistöðumatið, "Ekki er neitt frammistöðumat skráð fyrir árið 2019". Enskri þýðingu hefur verið bætt við.
Tvískráningar á námskeið - starfsmannavefur virkar ekki ef búið er að skila námskeiðsmati
Ef starfsmaður var tvískráður á námskeið og hann skilaði námskeiðsmati fyrir þetta tiltekna námskeið komst hann ekki inn á starfsmannavefinn eftir að hafa skilað námskeiðsmatinu. Þetta hefur verið lagað.