Upphafsvalmynd ráðninga á vef

Þegar smellt er á hnappinn Ráðningar á Kjarnavefnum þá birtast upplýsingar um fjölda umsækjenda, fjölda opinna auglýsinga m.v. ákveðinn dagafjölda, fjölda nýrra umsókna og fjölda þeirra umsækjenda sem eru tilbúnir til ráðningar.

Umsækjendur er fjöldi þeirra umsækjanda sem eru til í Kjarna og Nýjar umsóknir sýnir fjölda þeirra umsókna sem eru í Kjarna með stöðu umsóknar “Ný umsókn”.

Einnig birtist myndrænt tölfræði um kynjahlutfall og aldur umsækjenda.

Óski viðskiptavinir eftir að upplýsingar á upphafsvalmynd séu með öðrum hætti er þeim bent á að hafa samband á service@origo.is

Hægt er að komast inn í ráðningarferlið beint frá upphafsvalmynd úr hliðarvalmyndinni vinstra megin. Þar má finna eftirfarandi valmöguleika:

  • Auglýsingar og úrvinnsla

  • Umsækjendur

  • Umsækjendur leit

  • Þekking og reynsla

  • Ráðningarferli

  • Stofngögn

Ath. að hægt er að velja enska útgáfu með því að smella á EN neðst á síðunni.