Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

Version 1 Next »

Ef bakfæra þarf aldurshækkun er hægt að bakka aðgerð. Þessi aðgerð eyðir nýjum spjöldum og setur fyrri lokadagsetningu á eldri spjöld.

Farið er í Aldurhækkanir fyrir utan Launahring. Þar er hægt að fara í Aldursbunka til að finna númer bunkans sem á að bakfæra.

Einnig er hægt að fá upplýsingar um bunkanúmer með því að fara í Orlofs- eða grunnlaunaspjald starfsmanns sem á að leiðrétta, og ýta þar á Skoða síðustu aldurshækkun.

Í þessu dæmi er hægt að sjá að bunkanúmerið sem við erum að leita af er nr.136

Til að framkvæma aðgerðina er farið í Skoða í Aldurhækkun og ýtt á aðgerðarhjólið. Aðgerðin Bakka grunnlaunahækkun eða orlofshækkun eftir því sem við á.

Setja þarf inn númer bunkans og haka í Geyma niðurstöðu og ýta á Framkvæma.

Upp kemur aðgerðargluggi.

Aðgerðin hefur eytt nýja grunnlaunaspjaldinu og sett eldra spjald með fyrri lokadagsetningu.

  • No labels