Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 4 Next »

Óska eftir gögnum - fleiri en ein færsla fyrir lífeyrissjóð/séreignasjóð og skattkort

APPAIL-9719

Þegar óskað er eftir gögnum frá umsækjanda og óskað er eftir upplýsingum um lífeyrissjóð/séreignasjóð og skattkort hefur verið bætt við að núna er hægt að setja inn fleiri en eina færslu fyrir þessi atriði.

Óska eftir gögnum - umsækjandi getur skráð hlutfall í séreignasjóð

APPAIL-6777

Núna þegar óskað er eftir gögnum frá umsækjanda getur umsækjandainn skráð % hlutfall sem hann vill greiða í séreignasjóð. Ef umsækjandinn skráði 2% eða 4% í ferlinu á einn sjóð þá kemur færslan með reiknireglu “Reiknast eins og sjóður” en ef skráðar eru fleiri en einn sjóður þá kemur reiknireglan “Yfirskrifa hlutföll”. Ráðningaraðilinn fær meldingu ef mótframlagið fer yfir 2%, t.d. ef umsækjandinn hefur skráð fleiri en einn séreignasjóð en er þá hægt að laga það í ráðningarferlinu.

Fela Samskipti á umsækjanda/umsókn

APPAIL-8903

Búið er að bæta við stillingu sem felur Samskipti flísina á umsækjanda/umsókn. Admin sér samt alltaf þessa flís þrátt fyrir stillingu. Ef óskað er eftir að fá þessa stillingu inn skal senda beiðni á service@origo.is

Ráðningarferli - Tilfærsla - afritun á lífeyrissjóði

APPAIL-9826

Í tilfærslu er lífeyrissjóðsspjaldið afritað. Ef færslan sem var afrituð er yfirskrifuð (reikniregla Yfirskrifa hlutföll) þá afrituðust ekki hlutföllin með í nýju færsluna. Þetta hefur verið lagað

  • No labels