Styrkur - skilaboðum breytt
Skilaboðin sem koma á skjáinn þegar sótt var um styrk var breytt. Áður stóð að umsókn um líkamsræktarstyrk hafi verið send en núna stendur að umsókn um styrk hafi verið send.
Úttekið orlof í opinni útborgun
Þegar úttekið orlof var skráð í opna útborgun var sú úttekt að birtast í yfirliti líðandi mánaðar en staðan uppfærðist ekki fyrr en við lokun útborgunar. Virkninni hefur verið breytt þannig að úttekt líðandi mánaðar birtist ekki á starfmannavef fyrr en útborgun hefur verið lokað og er þá í samræmi við birta stöðu orlofs þar.
Dagpeningabeiðni - Festa flokk og tegund
Þegar staður er valinn í dagpeningabeiðni birtist núna sjálfkrafa sá flokkur sem staðurinn tilheyrir. Einnig var útbúið vefgildi til að festa tegund dagpeninga ef einungis á að vera heimilt að velja eina tegund. Til að virkja vefgildið skal hafa samband við ráðgjafa Origo með því að senda póst á service@origo.is.
Orlofsréttur
Bætt hefur verið við virkni þar sem núna er tékkað á orlofsstöðu starfsmann þegar starfsmaður skráir orlof í viðveru en einnig ef hann sendir inn orlofsbeiðni. Hægt er að slökkva á þeirri virkni að tékkað er á orlofsstöðu starsfmanns. Ef óskað er eftir því að slökkva á þessu tékki skal senda beiðni á service@origo.is
Póstnúmerum bætt við í póstnúmeralista
Það vantaði inn póstnúmer í póstnúmeralistann á starfsmannavefnum. Þeim hefur nú verið bætt við.
Starfslýsing - Gerð skýrari
Starfslýsing sem tengd er á stöðu er sýnileg í Tenging innan fyrirtækis á starsfmanni. Starfslýsingin var gerð sýnilegri en áður, núna er starfslýsingin í bláum lit og undirstrikuð.