Vinnuskylda starfsmanns á orlofsyfirliti
Vinnuskylda starfsmanns birtist nú á orlofsyfirliti á starfsmannavef m.v. það starfshlutfall sem starfsmaður er skráður í.
Hraðað á skjalaskáp
Hraðað hefur verið á skjalaskápnum á starfsmannavef.
Fundarboð frá starfsmannavef
Lagfæring hefur verið gerð þannig að þegar starfsmaður skráir sig á námskeið á starfsmannavef þá sendist út fundarboð.
Frammistöðumat og námskeiðsmat - textabreytingar og þýðingar
Í frammistöðumati og námskeiðsmati voru hnapparnir Vista og Vista og skila. Það var ekki alveg skýrt fyrir öllum notendum hvað hvor hnappur átti að gera og var því textanum á Vista og skila hnappinum breytt í Ljúka.
Textar þessara hnappa voru einnig alltaf á íslensku þrátt fyrir að notandi væri skráður inn á vefinn á ensku. Þessu hefur nú verið breytt þannig að hnapparnir þýðast yfir á ensku eins og aðrir textar á vefnum.