Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 11 Next »

Aldurshækkanir - eingöngu skoðaðir samningar með hækkunarreglur

APPAIL-3526

Nú skoðar Kjarni eingöngu þá samninga sem eru með skilgreindar hækkunarreglur þegar aðgerðin aldurshækkanir er keyrð.

Upplýsingar sóttar í grunnlaunaspjald - Fastir liðir

APPAIL-3966

Upplýsingar um  - Samning nr - Launaflokk - Þrep - Greiðsluform - Greiðslutíðni er nú sótt af grunnlaunaspjaldi þegar nýr launaliður er stofnaður í föstum liðum.

Spjald fyrir fasta liði - breytingar á útliti.

APPAIL-4279 og APPAIL-3709

Ef svæði eru yfirskrifuð í föstum liðum, þá koma þær upplýsingar bláletraðar á meðan annað er svartletrað.
Til viðbótar þá var svæðið fyrir númer launaliðar stækkað, þannig að allt númerið sjáist strax þegar það er slegið inn og einnig er nú leyfilegt að eyða út upphæð úr upphæðasvæði og skilja svæðið eftir autt.

Þegar listinn Fastir liðir er keyrður upp úr hliðarvali > Kjarni > Mannauður, þá koma yfirskrifaðar færslur einnig bláletraðar í þeim lista. Inn í þann lista var einnig bætt inn eftirfarandi atriðum, en þau eru aðgengileg í tákninu "Velja dálka"

Kennitala starfsmanns; stéttarfélag hans, númer og nafn; samningur, launaflokkur og þrep; Greiðsluform og greiðslutíðni; Tímabil launaliðar, ef yfirskrifað; Fyrirtæki, númer og nafn; Skipulagseining, númer og nafn; kostnaðarstöð, númer og nafn og loks staða, númer og nafn.

.Pivot fyrir lífeyrissjóði

APPAIL-3866

Hliðarval > Kjarni > Mannauður > Lífeyrissjóðir.

Bætt hefur verið við tákni fyrir pivot lista í tækjaslá listans Lífeyrissjóðir. Nú er hægt að greina á einfaldan hátt í pivot lista hversu margir greiða í hvaða lífeyrissjóð, hvernig aldurskipting er á milli sjóða o.s.frv.

Staðgreiðsla reiknast í 2. þrepi áður en 1. þrep er fyllt

APPAIL-4210

Í þeim tilfellum þar sem starfsmaður með fleiri en eitt launamannanúmer var í tveimur útborgunum fyrir sama tímabil þá reiknaðist þrepaskipting staðgreiðslu ekki rétt, þetta hefur nú verið lagað.

Bæta við "splitter" í ávinnslur og launaáætlun þ.a. hægt sé að stækka svæði fyrir launamannatré

APPAIL-4125

Nú hefur einnig verið bætt við "splitter" í skráningu á ávinnslum og launaáætlun.

Nú er hægt að minnka svæðið fyrir launamannatréð í skráningu á launum, ávinnslu og launaáætlun og stækka þannig skráningarsvæðið.

Vallisti þegar dálkahópur er valinn

APPAIL-4091

Bætt var við fellivali í tákninu þrír punktar í svæðinu númer dálkahóps, þannig að hægt er að skoða hvaða dálkahópar eru til þegar nýr er stofnaður.

Launaseðlar birtast ekki í viðhengjaspjaldinu

APPAIL-4211

Hliðarval > Starfsmenn> Valinn starfsmaður > Launaseðlar

Launaseðlar starfsmanna birtast ekki í viðhengjaspjaldinu. Fara þarf í spjaldið Launaseðlar til að skoða launaseðil starfsmanns.

Archive á launaseðlum þegar útborgun er lokað

APPAIL-3905

Þegar launaútborgun er lokað, vistast launaseðlar í spjaldi starfsmanns, Launaseðlar.

Ef útborgun er opnuð aftur, er vistun eytt.

Launaseðlar vistast sem mynd eða skjal þannig að t.d. áramótastaða launaseðils í skjalaskáp breytist ekki þó útborgunum fjölgi.

Athugið! Eftirfarandi stillingar þurfa að vera til staðar, til þess að launaseðlar vistist eðlilega:

Hliðarval > Kjarni  > Stofnskrár > Skjalaskápur - Eigendur skjala = Gildið er Pay og Eigandi skjals er Útborgun.

Hliðarval > Kjarni  > Stofnskrár > Skjalaskápur - Tegundir skjala = Gildið er PaySlips og Tegund skjals er Launaseðlar

Launaseðlar í hliðarvalmynd, spjaldi starfsmanns og í launahring sækja archive-aða launaseðla

APPAIL-3906

Ef útborgun er lokuð þá ætti að vera til launaseðill í skjalaskáp. Byrjað er á því að reyna að finna það skjal. Ef það er til þá er það opnað.
Ef það er ekki til þá birtast skilaboð svo notandinn sé meðvitaður um að launaseðillinn sé myndaður en ekki sóttur í skjalaskáp.

  • No labels