Aðgerðin Starfslok starfsmanna er aðgengileg í hliðarvalmynd Kjarna undir Kjarni > Mannauður. Þessa aðgerð er hægt að nota til þess að skrá á einfaldan hátt fleiri en einn starfsmann hættan.
Í upphafi aðgerðarinnar kemur upp valskjár þar sem hægt er að takmarka valið. Sjálfkrafa er valið takmarkað við alla starfsmenn sem eru í starfi í dag en hægt er að takmarka valið frekar, t.d. við ákveðna skiuplagseiningu eða ákveðna tegund ráðningar eins og sumarvinnu.
Upp kemur listi með öllum þeim starfsmönnum sem uppfylla skilyrðin. Valdir eru þeir starfsmenn sem merkja á hætta. Hægt er að velja fleiri en einn starfsmann í listanum með því að ljóma upp viðeigandi línur og halda Ctrl inni á milli lína ef þær eru ekki allar samliggjandi. Þegar viðeigandi starfsmenn hafa verið valdir er farið áfram á næsta skref.
Þar kemur upp skjár þar sem eftirfarandi upplýsingar eru skráðar:
- Starfslokadagsetning starfsmanns: Þessi dagsetning er sá dagur sem er seinasti starfsdagur starfsmannanna og verður endadagsetning á núverandi færslu í spjaldinu Tenging innan fyrirtækis. Dagurinn á eftir verður svo upphafsdagsetning Hættur færslu starfsmannanna í sama spjaldi.
- Ástæða starfsloka: Þarna er valin viðeigandi ástæða starfsloka þessara starfsmanna.
- Síðasti útborgunardagur: Sú dagsetning sem þarna er skráð er sett sem endadagsetning opinnar færslu starfsmannanna í spjaldinu Grunnlaun. Ef ekkert er skráð í þetta svæði þá er grunnlaunaspjaldi starfsmannanna ekki lokað og þeir halda áfram að koma upp í launaskráningu. Setja þarf endadagsetningu á færsluna í grunnlaunaspjaldinu svo hættir starfsmenn komi ekki upp í launaskráningu.
Ef starfsmaður er með skráða framtíðarfærslu í grunnlaunaspjaldi sem tekur gildi eftir síðasta útborgunardag kemur upp listi yfir þær fæslur. Ekki er hægt að flytja listann yfir í excel en það er hægt að ljóma upp línurnar og afrita með Ctrl+V og flytja þannig yfir í excel.
Ferlið er klárað og þá hafa starfsmennirnir verið skráðir hættir í Kjarna.