Bætt við röðun undirritenda
Bætt hefur verið við röðun undirritenda. Virknin er því þannig núna að starfsmenn fá skjalið til undirritunar í þeirri röð sem skilgreind er þegar skjalið er sent. Þegar sá sem er númer 1 í röðinni hefur lokið undirritun fær sá sem er númer 2 í röðinni tölvupóst um að undirrita og svo koll af kolli. Er þetta gert til að koma í veg fyrir að tveir starfsmenn undirriti sama skjalið samtímis. Hægt er að breyta röðun á undirritendum áður en skjalið er sent út. Sjálfvirk röðun er 1. Yfirmaður, 2. Starfsmaður, 3. Viðbótar aðili (ef honum er bætt við), 4. Viðbótar aðili (ef honum er bætt við) og svo koll af kolli.