Logo á launaseðlum
Ef ekkert Logo er vistað í stofnupplýsingum fyrirtækja kemur heitið Launaseðill þar sem logo kæmi annars á launaseðlum.
Listinn Stéttarfélög í Hliðarvali Kjarni Stéttarfélög - Bæta við vali
Bætt var við svæðum fyrir bankaupplýsingar innheimtuaðila í ‘Velja dálka’ sem hægt er að draga inn í listann.
Valskjár fyrir ávinnslur og skuldbindingu
Nú er hægt að sækja ávinnslu og skuldbindingu fyrir einn eða fleiri ávinnsluliði í einu, ef sækja á fyrir tvo ávinnsluliði eru þeir báðir tilgreindir með komu á milli eða valdir inn með plúsnum. Einnig er nú hægt að sækja ávinnslur og skuldbindingu fyrir tiltekin samning.
Ávinnslur sendar yfir í útborgun ( orlofs- og desemberuppbót )
Bókunarmánuður ræðst nú alltaf af greiðsluformi launamanns í útborgun, þegar ávinnslur eru fluttar yfir í útborgun.
Starfsendurhæfingarsjóður - aukastöfum fjölgað
Í lífeyrissjóðsspjaldi launamanns er hægt að yfirskrifa hlutfall fyrir starfsendurhæfingarsjóð. Aukastöfum í valmynd hefur verið fjölgað í fjóra.
Listar fluttir yfir í excel - dálkaheiti
Í síðustu útgáfu datt það út að rétt dálkaheiti komu með yfir í excel, þetta hefur nú verið lagað þannig að þegar listar eru fluttir yfir í excel kemur rétt heiti á dálkum.
Jafnlaunavottun og BSI skýrsla
Ef launamaður hætti á tímabilinu sem valið er fyrir skýrsluna þá kom hann með í skýrsluna, þessu hefur nú verið breytt þannig að ef launamaður var eitthvað með ráðningarmerkinguna Í starfi á tímabilinu þá kemur hann í skýrsluna.