Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 11 Next »

Hliðarvalmynd skipt upp

Hliðarvalmynd launa hefur verið skipt upp í Aðgerðir og Listar og stofnskár.

Aðgangsstýring að listanum Orlofsyfirlit

Aðgangsstýringu hefur verið bætt í listann Orlofsyfirlit svo yfirmenn sjái eingöngu sína starfsmenn í þessum lista.

Aldursmörk vegna greiðslna í lífeyrissjóði utan marka

(APPAIL-1837)

Út frá kennitölu viðkomandi starfsmanns er innbyggð reikniregla að ekki sé áskilinn lífeyrissjóður hjá þeim sem eru yngri en 16 ára og þeim sem eru eldri en 70 ára. Athugað er hvort viðkomandi er orðinn 16 eða 70 ára í mánuðinum eftir afmælisdaginn.

Aldursmörk vegna greiðslna í lífeyrissjóði innan marka  

(APPAIL-1838) 

Til þess að stilla inn athugasemdir: 
Skrá laun > Fellival í tækjaslá "Reiknir" > Reiknireglur: 
Stofna reiknireglu númer 9399 "Almennur lífeyrissjóður reiknast ekki" 
Skrá launalið nr. 9998 á reikniregluna. 
Pay Calc Rule ID = 9399 
Pay Calc Rule Name = Almennur lífeyrissjóður reiknast ekki 
Pay Cal ID = 300 
Pay Wage ID = 9998 

Líf- og starfsaldur

(APPAIL-2312)

Svæðið "95 ára regla" er komin inn í "Velja svið" í listanum Kjarni - Mannauður - Lífeyrissjóður.

Afrita launatöflu í kjarasamningi núll

APPAIL-2033

Hægt er að hækka töfluna undir kjarasamningi núll með því að hægri smella og velja hækka töflu. Breyta þarf dagsetningu nýju töflunnar, dagsetning getur ekki verið sú sama. Þá afritast gögn úr eldri töflu í nýja töflu.

Grunnlaunaspjald - gildistími og útborgunartímabil

APPAIL-2311 

Ef eftirágreiddur er að fá launabreytingu fram í tímann og þar með nýtt grunnlaunaspjald þá tekur nýja spjaldið ekki gildi fyrr en í þeirri útborgun. Núverandi útborgun tekur mið af gamla grunnlaunaspjaldinu.

Lífeyrissjóðsspjald launamanns - hlutföll

APPAIL-2251 

Ef að starfsmaður greiðir annað hlutfall eða mótframlag en það sem er í stofngögnum lífeyrissjóðs, þá má yfirskrifa hlutföll í lífeyrissjóðsspjaldi starfsmannsins.  Ef starfsmaður greiðir sama hlutfall og skráð er í stofngögnum

Ávinnsla orlofs- og desemberuppbótar

APPAIL-2260

Ávinnsla uppbóta notar nú samtölur réttinda, í stað tímaeiningar

Stofna útborgun - útborgunarnúmer

APPAIL-2270

Sjálfgefin útborgunarnúmer taka nú tillit til ártals útborgunar. Þannig fær ný útborgun númerið 02 á nýju ári í stað 02-01

Ávinnslur sóttar

APPAIL-2156

Ávinnslur sækjast nú einnig fyrir þá útborgun sem sem hún er sótt í.

Skuldbinding - senda í launaskráningu

APPAIL-2291

Eftir að ávinnslur hafa verið sóttar í ávinnsluskrá er aðgerðarhjól valið til að senda ávinnslur uppbóta í launaskráningu. 
Starfsmenn sem hafa verið gerðir upp áður koma ekki með í þessa skráningu.

Villumelding í reikningi launa sé skýrari

APPAIL-1687

Villumeldingar við launareikning koma í töflulista. Hægt að smella á villuboð og laga spjöld þegar við á og reikna aftur.

Skilagreinar - bæta við gjaldategundum stéttarfélaga

APPAIL-2264

Bætt var við tegundinni Prentæknisjóður = bókstafur E og Sérstakt gjald skv.bókun = bókstafur C

 Bunkainnlestur - yfirskrifa upphæðir úr launatöflu

APPAIL-2024

Ef upphæð er í innlestrarskjali þá yfirskrifar hún þá upphæð sem á að sækja í launatöflu.

Staðgreiðsla - reikningur

APPAIL-2388

Launaliður 9140 Eldri stofn til staðgreiðslu, tengdur inn í launareiknivél á ný. Þessi launaliður hækkar skattstofn þannig að staðgreiðsla reiknast í hærra skattþrep.

Grunnlaunaspjald - gildisdagsetningar

APPAIL-2397

Samningur, launaflokkur og þrep er sótt út frá samspili gildistíma spjalds og gildistíma útborgunar út frá greiðsluformi starfsmanns.

Dæmi. Gildistími útborgunar er  frá 1.apríl 2016 til 31.maí 2016. Starfsmaður er eftirágreiddur. Samningur, launaflokkur og þrep er sótt í grunnlaunaspjald starfsmanns sem er í gildi í apríl 2016, þó svo að starfsmaður eigi gilt grunnlaunaspjald frá 1.maí 2016 - svo framarlega sem launafærslur eru dagsettar á tímabilinu frá 1. til 30.apríl 2016.



  • No labels