Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 37 Next »

Allt í einu ferli

APPAIL-3961

Aðgerðin sem framkvæmir orlofsáramót í einu ferli var yfirfarin og fínstillt.

Greiðsluform í vinnslum fyrir orlofsáramót

APPAIL-3959

Orlofsáramót, hægt er að vinna orlofsáramót eftir greiðsluformi launamanns.
Ath. þetta er ekki hægt að nota ef hnappurinn Allt í einu ferli er notaður, aðeins ef orlofsáramótin eru framkvæmd skref fyrir skref.

Aðgerðarsaga fyrir orlofsáramót

APPAIL-3956

Bætt var í aðgerðarsögu orlofsútborgunar skráningu á hverju skrefi fyrir sig.

Stafsetning í valskjám í vinnslum fyrir orlofsáramót

APPAIL-3957

Hreinsað var til í fyrirsögnum í þeim valskjám sem notaðir eru í vinnslum orlofsáramóta.
Fyrirsagnir eru nú stuttar og hnitmiðaðar og lýsa vel hverri aðgerð fyrir sig.

Ávinnslur og skuldbinding

APPAIL-3691

Nú er hægt að sækja ávinnslu og skuldbindingar fyrir einn launamann án þess að eyða áður sóttum ávinnslum hjá öðrum starfsmönnum.

Endurvinna orlofstíma afturvirkt

APPAIL-3501

Nýrri aðgerð hefur verið bætt inn í aðgerðarhjólið í launaskráningu. Þetta er aðgerðin Endurreikna orlofstíma.

Ef orlofsflokki starfsmanns er breytt í orlofsspjaldi hans eftir að útborgun er lokað, er þessi aðgerð notuð til þess að uppfæra þegar reiknaða orlofstíma hans.

Að aðgerð lokinni þarf að endurvinna áramótastöðu starfsmannsins til að birta breytta tíma á launaseðli.

Aldurshækkanir / Gildir frá

APPAIL-3946

Bætt var i valskjá aldurshækkana svæði fyrir dagsetningu sem stýrir því hvenær nýja spjaldið á að taka gildi.

Fastir liðir sóttir - Valskjár

APPAIL-3573

Bætt hefur verið við möguleikanum að sækja valda launaliði.

Fastir liðir - yfirskrifa samning, launaflokk eða þrep

APPAIL-2545

Ef samningur, launalokkur eða þrep er yfirskrifað í föstum liðum starfsmanns, hefur það líka áhrif á launaskráningu og innlestur úr bunka á þann hátt að yfirskriftin fylgir þar líka. Sama er með launaáætlun og skuldbindingu, yfirskrift launaliðar fylgir honum hvar sem hann er notaður fyrir þennan starfsmann.

Útborgunarmynd launa

APPAIL-3971

Í flipanum Önnur tímabil í útborgunarmynd launa er hægt að velja skilagreinamánuð tímabils.

Skilagreinamánuður sækir fyrsta dag mánaðar og skráir í svæðið Bókunardagur. Ekki er lengur hægt að breyta bókunardegi, heldur breytist hann í samræmi við skilagreinamánuð.

Bókunardagur í útborgunarmynd er einungis ætlaður í skýrslugerð - hefur ekki áhfir á það hvaða dagsetning kemur í bókunarskjal launa.

Bókunardagur og Greiðsluform

APPAIL-4011

Þegar greiðsluformi er breytt í færslu í "skrá laun" þá breytist tbl = tímabil, bókunardagur, skilagreinamánuður í takt, skv skilgreiningum á útborgun.

Breyttur valskjár í launalistum

APPAIL-3473

Valskjár fyrir launaskýrslur var endurhannaður. Þessar breytingar eru helstar:

Hægt er að velja fyrirtæki, ár og kostnaðarstöð. Einnig er hægt að velja út frá útborgunarnúmeri - ekki einungis útborgunarvísi eins og var.


Gagnagrunnsstækkun - ný svæði í launalínu

APPAIL-3465 - APPAIL-3466

Eftirfarandi svæði eru nú aðgengileg í launalínu starfsmanns.

Launaár - PayYear

Fyrirtækisnúmer - OrgCompanyNR, nafn sótt sem lookup.

Útborgun númer - PayNR

Kennitala starfsmanns - EntityNR

Svæði, númer og nafn. Þetta eru "lookup" svæði, þ.e.a.s. í hvert sinn sem listi er skoðaður þá er þetta svæði sótt í spjaldið tengingar innan fyrirtækis.

Undirsvæði, númer og nafn. Þetta eru "lookup" svæði, þ.e.a.s. í hvert sinn sem listi er skoðaður þá er þetta svæði sótt í spjaldið tengingar innan fyrirtækis.

Aðgerð

Keyra verður aðgerð á eldri færslur til að setja inn rétt gildi í færsluskrá. Farið er í skipun „PayRecordFix.Action“ og valin þau atriði sem á að laga. Ef ekki er búið að laga færsluskrárnar þá virkar valskjárinn ekki rétt ef sækja á færslur út frá þessum nýju gildum. Ef óskað er aðstoðar ráðgjafa Applicon, þá vinsamlega sendið beiðni á service@applicon.is

Kjaramálagjald í gjaldategund stéttarfélaga

APPAIL-4074

Bætt hefur verið við gjaldategund stéttarfélaga fyrir Kjaramálagjald (K).

Bætt hefur verið við "Splitter" í skráningu launa.

APPAIL-4049

Bætt hefur verið við "Splitter" í skráningu launa þ.a. hægt er nú að stækka svæði fyrir launamannatré.

Þegar farið er á milli launamannatrés og skráningu launa þá myndast merki á milli, hægt er að draga fram og til baka.


Vinnustund - starfsmenn með fleirra en eitt launamannanúmer.

APPAIL-4168

Þegar starfsmenn eru með fleirra en eitt launamannanúmer í Kjarna voru bunkafærslur úr Vinnustund ekki að skila sér rétt niður á launamannanúmerin þegar bunkar

úr Vinnustund voru fluttir yfir, heldur lásust allar færslur á fyrsta númerið.  

Þetta hefur núna verið lagfært og færslur flytjast á rétt númer.


Aðgerð til að reikna stöðugildi.

APPAIL-3066

Bætt hefur verið við aðgerðinni endurreikna stöðugildi.

Endurreikningurinn er framkvæmdur með því að fara í Skrá laun í þeirri útborgun sem endurreikna á og velja þar tannhjólið.  Neðst í þeim lista er valið að endurreikna stöðugildi.

Hægt er að taka út útborgunarnúmer ef endurreikna á allar útborganir viðkomandi starfsmanns eða hægt að taka út nafnið ef endurreikna á stöðugildi allra starfsmanna í valinni útborgun.

Valskjárinn virkar hér eins og á öðrum stöðum, hægt er að velja fleirri en eina útborgun í einu.

Orlofslisti í hliðarvali > Kjarni > Mannauður

APPAIL-4118

Nú er hægt að velja inn í listann Orlof svæðin kjarasamningur og stéttarfélag, bæði númer og nöfn þessar svæða.

Þetta auðveldar til muna afstemmingu við núllstillingu orlofsárs um orlofsáramót.

Reikniliðir í hliðarvali > Kjarni > Mannauður

APPAIL-4164

Nú er hægt að velja inn í listann Reikniliðir svæðin kjarasamningur, númer og nafn, greiðsluform og ráðningarmerkingu.

Grunnlaunaspjald í hliðarvali > Kjarni > Mannauður

APPAIL-4167

"Fríska" vandamál lagfært. Komu ekki alltaf réttar tölur í upphæðasvæðið í grunnlaunaspjaldinu.

Birting aukastafa í launatöflu.

APPAIL-4186

Nú er hægt að stilla hversu margir aukastafir eru sýnilegir í launatöflu.

Farið er í Xap- gildi og skipunin  "PayStep.DisplayFormat" er stillt á N0,N1,N2,N3 eða N4 allt eftir því hvað á að sýna marga aukastafi.
Þegar taflan er flutt í Excel þá koma jafn margir aukastafir og eru skilgreindir í stillingu.

Flipinn Fastar í launatöflum

APPAIL-3782

Dálkar voru jafnaðir þannig að gildi í dálkunum sést þegar flipinn er opnaður.

Launabókun - viðbótarvídd "Starfsmannanúmer"

APPAIL-4162

Bætt hefur verið við möguleikanum á að bóka laun beint á starfsmannanúmer starfsmanna. Notað þegar starfsmannanúmer er notað sem viðskiptamannanúmer í launabókhaldi.

Launabókun

APPAIL-3623 - Matís launabókun
Svæði fyrir númer kostnaðarstöðva stækkað í 4 tölustafi

APPAIL-4160 - Gray Line launabókun
Heiti bókhaldslykla skipt út fyrir heiti bókunarmánaðar.

Aðgangsstýringar fyrir Samtalstölur í útborgun

APPAIL-4116

Aðgangsstýringum hefur verið bætt við helluna Samtalstölur í útborgun á helluvalmynd launa þannig að hægt sé að hafa þessa hellu aðgengilega fyrir þá notendur sem ekki hafa aðgang að launum allra starfsmanna. 


  • No labels