Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 31 Next »

Greiðsluform í vinnslum fyrir orlofsáramót

APPAIL-3959

Orlofsáramót, hægt er að vinna orlofsáramót eftir greiðsluformi launamanns.

Ávinnslur og skuldbinding

APPAIL-3691

Nú er hægt að sækja ávinnslu og skuldbindingar fyrir einn launamann án þess að eyða áður sóttum ávinnslum hjá öðrum starfsmönnum.

Aldurshækkanir / Gildir frá

APPAIL-3946

Bætt var i valskjá aldurshækkana svæði fyrir dagsetningu sem stýrir því hvenær nýja spjaldið á að taka gildi.

Fastir liðir sóttir - Valskjár

APPAIL-3573

Bætt hefur verið við möguleikanum að sækja valda launaliði.

Fastir liðir - yfirskrifa samning, launaflokk eða þrep

APPAIL-2545

Ef samningur, launalokkur eða þrep er yfirskrifað í föstum liðum starfsmanns, hefur það líka áhrif á launaskráningu og innlestur úr bunka á þann hátt að yfirskriftin fylgir þar líka. Sama er með launaáætlun og skuldbindingu, yfirskrift launaliðar fylgir honum hvar sem hann er notaður fyrir þennan starfsmann.

Útborgunarmynd launa

APPAIL-3971

Í flipanum Önnur tímabil í útborgunarmynd launa er hægt að velja skilagreinamánuð tímabils.

Skilagreinamánuður sækir fyrsta dag mánaðar og skráir í svæðið Bókunardagur. Ekki er lengur hægt að breyta bókunardegi, heldur breytist hann í samræmi við skilagreinamánuð.

Bókunardagur í útborgunarmynd er einungis ætlaður í skýrslugerð - hefur ekki áhfir á það hvaða dagsetning kemur í bókunarskjal launa.

Bókunardagur og Greiðsluform

APPAIL-4011

Þegar greiðsluformi er breytt í færslu í "skrá laun" þá breytist tbl = tímabil, bókunardagur, skilagreinamánuður í takt, skv skilgreiningum á útborgun.

Breyttur valskjár í launalistum

APPAIL-3473

Valskjár fyrir launaskýrslur var endurhannaður. Þessar breytingar eru helstar:

Hægt er að velja fyrirtæki, ár og kostnaðarstöð. Einnig er hægt að velja út frá útborgunarnúmeri - ekki einungis útborgunarvísi eins og var.


Gagnagrunnsstækkun - ný svæði í launalínu

APPAIL-3465 - APPAIL-3466

Eftirfarandi svæði eru nú aðgengileg í launalínu starfsmanns.

Launaár - PayYear

Fyrirtækisnúmer - OrgCompanyNR, nafn sótt sem lookup.

Útborgun númer - PayNR

Kennitala starfsmanns - EntityNR

Svæði, númer og nafn. Þetta eru "lookup" svæði, þ.e.a.s. í hvert sinn sem listi er skoðaður þá er þetta svæði sótt í spjaldið tengingar innan fyrirtækis.

Undirsvæði, númer og nafn. Þetta eru "lookup" svæði, þ.e.a.s. í hvert sinn sem listi er skoðaður þá er þetta svæði sótt í spjaldið tengingar innan fyrirtækis.

Aðgerð

Keyra verður aðgerð á eldri færslur til að setja inn rétt gildi í færsluskrá. Farið er í skipun „PayRecordFix.Action“ og valin þau atriði sem á að laga. Ef ekki er búið að laga færsluskrárnar þá virkar valskjárinn ekki rétt ef sækja á færslur út frá þessum nýju gildum. Ef óskað er aðstoðar ráðgjafa Applicon, þá vinsamlega sendið beiðni á service@applicon.is

Kjaramálagjald í gjaldategund stéttarfélaga

APPAIL-4074

Bætt hefur verið við gjaldategund stéttarfélaga fyrir Kjaramálagjald (K).

Bætt hefur verið við "Splitter" í skráningu launa.

APPAIL-4049

Bætt hefur verið við "Splitter" í skráningu launa þ.a. hægt er nú að stækka svæði fyrir launamannatré.

Þegar farið er á milli launamannatrés og skráningu launa þá myndast merki á milli, hægt er að draga fram og til baka.


Vinnustund - starfsmenn með fleirra en eitt launamannanúmer.

APPAIL-4168

Þegar starfsmenn eru með fleirra en eitt launamannanúmer í Kjarna voru bunkafærslur úr Vinnustund ekki að skila sér rétt niður á launamannanúmerin þegar bunkar

úr Vinnustund voru fluttir yfir, heldur lásust allar færslur á fyrsta númerið.  

Þetta hefur núna verið lagfært og færslur flytjast á rétt númer.


Aðgerð til að reikna stöðugildi.

APPAIL-3066

Bætt hefur verið við aðgerðinni endurreikna stöðugildi.

Endurreikningurinn er framkvæmdur með því að fara í Skrá laun í þeirri útborgun sem endurreikna á og velja þar tannhjólið.  Neðst í þeim lista er valið að endurreikna stöðugildi.

Hægt er að taka út útborgunarnúmer ef endurreikna á allar útborganir viðkomandi starfsmanns eða hægt að taka út nafnið ef endurreikna á stöðugildi allra starfsmanna í valinni útborgun.

Valskjárinn virkar hér eins og á öðrum stöðum, hægt er að velja fleirri en eina útborgun í einu.

Orlofslisti í hliðarvali > Kjarni > Mannauður

APPAIL-4118

Nú er hægt að velja inn í listann Orlof svæðin kjarasamningur og stéttarfélag, bæði númer og nöfn þessar svæða.

Þetta auðveldar til muna afstemmingu við núllstillingu orlofsárs um orlofsáramót.

Reikniliðir í hliðarvali > Kjarni > Mannauður

APPAIL-4164

Nú er hægt að velja inn í listann Reikniliðir svæðin kjarasamningur, númer og nafn, greiðsluform og ráðningarmerkingu.

Birting aukastafa í launatöflu.

APPAIL-4186

Nú er hægt að stilla hversu margir aukastafir eru sýnilegir í launatöflu.

Farið er í Xap- gildi og skipunin  "PayStep.DisplayFormat" er stillt á N0,N1,N2,N3 eða N4 allt eftir því hvað á að sýna marga aukastafi.
Þegar taflan er flutt í Excel þá koma jafn margir aukastafir og eru skilgreindir í stillingu.

Flipinn Fastar í launatöflum

APPAIL-3782

Dálkar voru jafnaðir þannig að gildi í dálkunum sést þegar flipinn er opnaður.

Launabókun - viðbótarvídd "Starfsmannanúmer"

APPAIL-4162

Bætt hefur verið við möguleikanum á að bóka laun beint á starfsmannanúmer starfsmanna. Notað þegar starfsmannanúmer er notað sem viðskiptamannanúmer í launabókhaldi.

Launabókun

APPAIL-3623 - Matís launabókun
Svæði fyrir númer kostnaðarstöðva stækkað í 4 tölustafi

APPAIL-4160 - Gray Line launabókun
Heiti bókhaldslykla skipt út fyrir heiti bókunarmánaðar.


  • No labels