Svæðið Síðasti starfsdagur bætt við í lista
Svæðinu Síðasti starfsdagur hefur verið bætt við eftirfarandi lista:
- Ráðningarsamningur
- Formbréf - grunnur
- Starfsmaður
- Tenging innan fyrirtækis
Helluvalmynd fyrir Laun og Áætlun
Núna er hægt að stilla það í Xap > Gildi að upp komi helluvalmynd þegar Laun og Áætlun er valið í hliðarvalmynd. Fyrir Kjarni > Laun er stillingin Xap.Startup.Pay og fyrir Kjarni > Áætlun er stillingin Xap.Startup.Budget og sett er inn númer valmyndar sem gildi. Ef ekkert númer er sett inn þá kemur engin valmynd upp.
Valskjár á skýrsluna Starfsafmæli
Búið er að bæta við valskjá ofan á skýrsluna starfsafmæli. Sjá nánar hér.
Valskjár á skýrsluna Stórafmæli
Búið er að bæta við valskjá ofan á skýrsluna stórafmæli. Sjá nánar hér.
Svæðinu Notendanafn bætt við í starfsmannalista
Notendanafni hefur verið bætt við í starfsmannalistann, Kjarni > Mannauður > Starfsmenn.