...
Starfsmaður með tvö launamannanúmer var bara að birtast undir annarri skipulagseiningunni í starfsmanna-, launamannatré og launaáætlun. Þetta hefur nú verið lagað. Þegar leitað er eftir nafni starfsmanns í starfsmannatré þegar flokkað er eftir nafni þá birtist nafn viðkomandi einu sinni og bæði launamannanúmerin birtast þegar upplýsingar um starfsmanninn eru sprengdar út. Þegar flokkað er eftir skipulagseiningu og nafn starfsmanns slegið upp í glugganum Finna þá birtist nafn starfsmannsins tvisvar og hægt að sprengja út upplýsingar fyrir hvort launamannanúmerið/starfið fyrir sig.
Hægt er að skrá erlend heimilisföng og póstnúmer í starfsmannaspjaldið
Það var bara hægt að skrá íslensk heimilsföng og póstnúmer (sem sótt voru í lista á bakvið) í starfsmannaspjaldið. Þessu hefur verið breytt og nú er hægt að skrá erlend heimilisföng og póstnúmer í starfsmannaspjaldið sem birtist þá einnig í öðrum spjöldum/listum þar sem við á. Þessar breytingar eiga bæði við um lögheimili og aðsetur. Ef póstnúmer finnst ekki í listanum þá er hægt að handskrá póstnúmer í dálkinn.