Bætt var við svæðum í EmployeeDetailOrg modelið
Bætt var við svæðum í EmployeeDetailOrg modelið fyrir land (Country, CountryName, LegalCountry og LegalCountryName) og fyrir heimasíðu (Homepage), vegna AD vörpunar.
Starfsmaður með tvö launamannanúmer birtist nú undir báðum skipulagseiningum.
Starfsmaður með tvö launamannanúmer var bara að birtast undir annarri skipulagseiningunni í starfsmanna-, launamannatré og launaáætlun. Þetta hefur nú verið lagað. Þegar leitað er eftir nafni starfsmanns í starfsmannatré þegar flokkað er eftir nafni þá birtist nafn viðkomandi einu sinni og bæði launamannanúmerin birtast þegar upplýsingar um starfsmanninn eru sprengdar út. Þegar flokkað er eftir skipulagseiningu og nafn starfsmanns slegið upp í glugganum Finna þá birtist nafn starfsmannsins tvisvar og hægt að sprengja út upplýsingar fyrir hvort launamannanúmerið/starfið fyrir sig.