Ef að ekki var hakað við "Reikna áætlun" þegar fastir launaliðir voru sóttir í áætlun er hægt að velja hnappinn "Reikna áætlun" í áætlunar hringnum. Þegar smellt er á þann hnapp opnast valskjár þar sem búið er að forskrá inn upplýsingar um valda áætlun. Ef aðeins á að reikna valda mánuði er númer þeirra skráð í dálkinn Mánuðir með kommu á milli. Dæmi: Ef aðeins á að reikna janúar, febrúar og mars er skráð 1,2,3 í dálkinn mánuðir. Ef ekki á að reikna alla starfsmenn/launamenn er hægt að velja inn einstaka starfsmenn/launamenn í viðeigandi dálka. Ef að breytingar hafa verið á launatöflu eða grunnlaunum starfsmanna er sett hak í reitinn "Endursækja upphæð í launatöflu". |
Page Comparison
General
Content
Integrations