...
Upphæðardálkur í spjaldið Hlutir í láni
APPAIL-2465
Í spjaldið hlutir í láni var bætt við dálki þar sem hægt er að skrá upphæð. Dálknum var einnig bætt í listann Hlutir í láni sem er í hliðarvalmynd Mannauðs.
Prenta úr viðhengjaspjaldinu
...
Bætt hefur verið við virkni að prenta viðhengi í skjalaskápshnappnum í tækjastikunni. Þarf því ekki að opna skjalið til að prenta það út heldur nóg að velja færslu og prentahnappinnprenthnappinn.
Eyða viðhengi
APPAIL-2416
Bætt hefur verið við eyða virkni í skjalaskápshnappnum í tækjastikunni. Þannig núna er hægt að eyða skjali beint í spjaldinu fyrir viðhengi.
Áminningar á réttindum
APPAIL-2492
...
Þegar réttindi eru stofnuð í kerfið er hægt að skilgreina hversu lengi réttindin gilda. (dæmi: skírteini í fyrstu hjálp gildir í tvö ár). Þegar viðkomandi réttindi eru skráð á starfsmann kemur kerfið sjálfkrafa með endadagsetningu réttindanna út frá því sem skráð var inn í grunnskráningu réttindanna (dæmi: skírteini gilda frá 01.01.2015, kerfið kemur sjálfkrafa með endadagsetningu 01.01.2017). Nú er hægt að yfirskrifa endadagsetninguna ef að hún á ekki að fylgja því sem skráð var í stonfupplýsingar réttindanna.
Starfsaldurstegundir í spjaldinu Starfsaldur
APPAIL-1903
Þegar viðbótarstarfsaldur er skráður á starfsmann í spjaldinu Starfsaldur þá koma ekki lengur upp í listann útreiknuðu tegundirnar Starfsaldur í fyrirtæki og Lífaldur. Þetta eru þær tegundir sem Kjarni notar til útreiknings í tengslum við aldurshækkanir en ekki tegundir sem notendur eiga að skrá á í spjaldinu. Það gat því valdið ruglingi að þessar tegundir birtust þarna inni. Núna koma því bara upp í listann þær tegundir sem notendur geta skráð á.