Mannauður 3.5.9

Ráðningardagsetning starfsmanns ef búið er að skrá starfslok fram í tímann

APPAIL-2039

Ef búið var að skrá starfslok á starfsmann fram í tímann þá hætti ráðningardagsetning starfsmanns að birtast í spjaldinu Starfsmaður og þeim listum þar sem hægt er að birta ráðningardagsetningu. Þetta hefur verið lagað þannig að ráðningardagsetning birtist þrátt fyrir að starfslok hafi verið skráð fram í tímann. Það var líka farið yfir virkni tengt því ef starfsmaður hefur ekki hafið störf ennþá að þá birtist samt sem áður þessi framtíðar ráðningardagsetning á honum í spjaldinu Starfsmaður og eins í viðeigandi listum. 

Upphæðardálkur í spjaldið Hlutir í láni

APPAIL-2465

Í spjaldið hlutir í láni var bætt við dálki þar sem hægt er að skrá upphæð. Dálknum var einnig bætt í listann Hlutir í láni sem er í hliðarvalmynd Mannauðs. 

Prenta úr viðhengjaspjaldinu

APPAIL-2416

Bætt hefur verið við virkni að prenta viðhengi í skjalaskápshnappnum í tækjastikunni. Þarf því ekki að opna skjalið til að prenta það út heldur nóg að velja færslu og prenthnappinn.

Eyða viðhengi

APPAIL-2416

Bætt hefur verið við eyða virkni í skjalaskápshnappnum í tækjastikunni. Þannig núna er hægt að eyða skjali beint í spjaldinu fyrir viðhengi.

Áminningar á réttindum

APPAIL-2492

Búið er að fela áminningarvirknina þegar stofnuð eru réttindi. Eins var 'Áminningar' tekið út úr hliðarvalmyndinni. Áminningar fyrir réttindi eru núna stofnaðar undir Kjarni > Stofnskrá > Áminningar

Gildistími réttinda

APPAIL-2491

Þegar réttindi eru stofnuð í kerfið er hægt að skilgreina hversu lengi réttindin gilda. (dæmi: skírteini í fyrstu hjálp gildir í tvö ár). Þegar viðkomandi réttindi eru skráð á starfsmann kemur kerfið sjálfkrafa með endadagsetningu réttindanna út frá því sem skráð var inn í grunnskráningu réttindanna (dæmi: skírteini gilda frá 01.01.2015, kerfið kemur sjálfkrafa með endadagsetningu 01.01.2017). Nú er hægt að yfirskrifa endadagsetninguna ef að hún á ekki að fylgja því sem skráð var í stonfupplýsingar réttindanna.  

Starfsaldurstegundir í spjaldinu Starfsaldur

APPAIL-1903

Þegar viðbótarstarfsaldur er skráður á starfsmann í spjaldinu Starfsaldur þá koma ekki lengur upp í listann útreiknuðu tegundirnar Starfsaldur í fyrirtæki og Lífaldur. Þetta eru þær tegundir sem Kjarni notar til útreiknings í tengslum við aldurshækkanir en ekki tegundir sem notendur eiga að skrá á í spjaldinu. Það gat því valdið ruglingi að þessar tegundir birtust þarna inni. Núna koma því bara upp í listann þær tegundir sem notendur geta skráð á. 

Dálknum "yfirmaður" bætt í listann ráðningarsamningar

APPAIL-1767

Upplýsingar um yfirmann hefur verið bætt í listann ráðningarsamningar þannig að nú er hægt að birta næsta yfirmann á samningum sem eru útbúnir í kerfinu. 

Skipurit í hliðarvalmynd - fríska og leita

APPAIL-2437

Fríska hnappi hefur verið bætt við skipurit í hliðarvalmynd þannig að nú er hægt að fríska skipuritið eftir að breytingar hafa verið gerðar á skipuriti. Einnig hefur leitarmöguleika verið bætt við skipuritið, sambærilegum leitinni í starfsmannatrénu. Í skipuritinu er nú hægt að leita eftir nafni á skipulagseiningu og nafni á starfsmanni.