...
Til að bóka laun er smellt á Bóka hnappinn neðst til hægri á valskjánum.
Eftir að búið er að loka útborgun og laun, áætlun eða skuldbinding eru bókuð er bókuninni læst til að koma í veg fyrir að óvart sé bókað aftur síðar.
Undir "Laun" í miðjum launahring er flipinn "Bókun og skuldbinding" og þar kemur hak í "Laun bókuð" fyrir laun og áætlun en í Skuldbinding bókuð" fyrir skuldbindinguna.
Hægt er að setja hak í svæðin ef notandi vill læsa bókun áður en útborgun er lokað.
Ef bókunaraðgerð er framkvæmd aftur eftir að hakið er komið í bókunarsvæðið þá kemur upp skilaboðagluggi þar sem skrá þarf inn lykilorðið "bóka aftur" til að framkvæma bókunina aftur.
Með því að smella á Skoða í aðgerðarlínunni opnast einfaldur listi með upplýsingum úr launabókuninni.
...