Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

Stofnun og viðhald á upplýsingum um skattprósentur, skattþrep, persónuafslátt, tryggingagjald, fjársýsluskatt, frítekjumark barna og frádrátt af orlofi í banka er í listanum Skattprósentur.  Stofna þarf eina færslu fyrir fyrirtæki nr.1 en ef skilgreining er eins fyrir önnur fyrirtæki þarf ekki að stofna sér færslu fyrir hvert fyrirtæki.  Ef ekki er til skattaskilgreining fyrir fyrirtæki þá er stilling fyrirtækis 1 notuð.  Hægt er setja inn stillingu í Stillingar > Gildi ef aðalstilling er fyrir annað fyrirtæki en númer 1 "Poet.PayTaxSteps.OrgCompanyID" númer fyrirtækis er þá sett í Gildi.

Ef einstaka starfsmenn eru með aðra skattareglu er hægt að stofna þær hér og tengja á viðkomandi starfsmann í spjaldinu Starfsmaður undir flipanum Launakerfi.  Æskilegt er að láta númer þessara sér reglna byrja í 1000 svo ekki sé frátekið t.d nr. 3 ef fyrirtæki nr. 3 væri stofnað síðar.  Skattaregla nr 1000 og hærra fá nafnið Starfsmannaregla, ekki er hægt að breyta þessu nafni. 


Hliðarval > Kjarni > Laun > Skattprósentur.

...

Tryggingar / Innheimta

Slá þarf inn prósentu tryggingagjals tryggingagjalds og tegund stofns. Hæsta númerið er yfirleitt 2047 og er það notað til öryggis þannig að öll laun lendi örugglega innan stofns til tryggingagjalds.

Þar sem fjársýsluskattur er skylda, þarf einnig að slá inn þá prósentu.

Hámark til innheimtu á við 75% reglu vegna opinberra gjalda. 

...