Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

Töflusaga launamanna sýnir allar launahækkanir út frá launatöflum lanamanns sem skráðar eru á hann í grunnlaunaspjaldi.

Listann er hægt að opna á nokkrum stöðum í Kjarna

Laun - Listar og stofnskrár

Image Added

Þegar töflusaga launamanna er opnuð er hægt að velja um að birta hana fyrir einn eða fleirri launamenn. Ef opna á listann fyrir valda launamenn eru laumanannanúmerin slegin inn í svæðið “Launamaður nr” með kommu á milli.

Ef svæðið er tómt opnast listinn fyrir alla starfsmenn.

Það sama á við um svæðið “Samningur nr”. Ef opna á listinn fyrir einn samning er hann slegin inn og komma á milli ef opna á fyrir ákveðna saminga.

Ef ekkert er valið opnast listinn fyrir alla samninga.

í “Gildir frá” er hægt að velja að opna listann frá ákveðnum gildisdegi.

Einnig er hægt að velja hvort taka eigi með launatöflur sem merktar eru með tegundinni “Áætlun” með því að setja hak í “Skoða líka launaáætlunartöflur”.

Launatöflur

Image AddedImage Added

Töflusaga launamanna er aðgengileg beint úr launatöflum.

Annars vegar með því að smella á aðgerðarhjólið í launatöflum og velja þar Töflusaga launamanna.

Og hins vegar með því að hægri smella á valinn gildisdag fyrir ákveðin samning og smella þar á Töflusaga launamanna.

Grunnlaunaspjald

Image AddedImage Added

Í grunnlaunaspjaldi er kominn nýr hnappur “Töflusaga” sem smellt er á fyrir Töflusögu launamanna.

Valskjárinn opnast þarna með launamannanúmeri starfsmanns og samningsnúmer launatöflu.

Töflusaga launamanna

Image Added

Töflusaga launamanna sýnir launaþróun launamanns útfrá hækkunum launataflna þar sem hver lína sýnir hækkun milli dagsetning og einnig hækkun frá völdum frádegi bæði í prósentum og krónum.

Ef að starfsmenn með takmarkaðan aðgang að Kjarna eiga að fá aðgang að listanum Töflusaga launamanna þarf að bæta skipun í hlutverkið sem viðkomandi er með.

Til þess að fá hana inn þarf að senda beiðni þess efnis á service@origo.is