/
Töflusaga launamanna

Töflusaga launamanna

 

 

 

 

image-20250123-161549.png

 

Töflusaga launamanna sýnir allar launahækkanir út frá launatöflum launamanns sem skráðar eru á hann í grunnlaunaspjaldi.

Töflusaga launamanna sýnir launaþróun launamanns útfrá hækkunum launataflna þar sem hver lína sýnir hækkun milli dagsetninga og einnig hækkun frá völdum frádegi bæði í prósentum og krónum.

 

Með því að hægrismella eða tvísmella í línu er hægt að komst í grunnlaunaspjald eða launatöflu þess starfsmanns sem valinn er.

Ef starfsmenn með takmarkaðan aðgang að Kjarna eiga að fá aðgang að listanum Töflusaga launamanna þarf að bæta skipun í hlutverkið sem viðkomandi er með.

Til þess að fá hana inn þarf að senda beiðni þess efnis á service@origo.is

image-20250123-160722.png

Listann er hægt að opna á nokkrum stöðum í Kjarna.

Laun>Töflusaga launamanna

 

Þegar töflusaga launamanna er opnuð er hægt að velja um að birta hana fyrir einn eða fleiri launamenn. Ef opna á listann fyrir valda launamenn eru laumanannanúmerin slegin inn í svæðið “Launamaður nr” með kommu á milli.

Ef svæðið er tómt opnast listinn fyrir alla starfsmenn.

Það sama á við um svæðið “Samningur nr”. Ef opna á listinn fyrir einn samning er hann slegin inn og komma á milli ef opna á fyrir ákveðna saminga.

Ef ekkert er valið opnast listinn fyrir alla samninga.

í “Gildir frá” er hægt að velja að opna listann frá ákveðnum gildisdegi.

Hægt er að velja að Sækja allar dagsetningar

Einnig er hægt að velja hvort taka eigi með launatöflur sem merktar eru með tegundinni “Áætlun” með því að setja hak í “Skoða líka launaáætlunartöflur”.

image-20250123-161822.png

 

Í grunnlaunaspjaldi er hnappurinn “Töflusaga” sem smellt er á fyrir töflusögu launamanns.

 

Valskjárinn opnast með launamannanúmeri starfsmanns og samningsnúmer launatöflu.

 

image-20250123-162305.png

 

Töflusaga launamanna er einnig aðgengileg beint úr launatöflum.

Annars vegar með því að smella á aðgerðarhjólið í launatöflum og velja þar Töflusaga launamanna.

Og hins vegar með því að hægrismella á valinn gildisdag fyrir ákveðin samning og smella þar á Töflusaga launamanna.

 

 

 

 

 

Related content