...
Þegar launamiðar eru sendir til Ríkisskattstjóra er nú hægt að velja um að senda svo kallaða Sveitarfélgamiða vegna félagslegrar aðstoðar. Til þess að Sveitarfélagamiðar myndist í Kjarna þarf að skilgreina í starfsmannaspjaldi launþega að hann sé að fá Félagslega aðstoð. Það er gert undir flipanum Launakerfi.
...
Dagsetningar úr Kjarna yfir í Tímon
Kjarni var að senda dagsetningu breytinga sem gerðar voru á spjaldinu Tenging innan fyrirtækis í svæðið Ráðningardagur í Tímon sem gerði það að verkum að útreikninur á veikindarétti var ekki réttur. Þessu hefur nú verið breytt þannig að í svæðið Ráðningardagur í Tímon eru núna fluttar dagsetningar úr svæðinu Viðmið til launa frá Kjarna. Einnig hafði virknin milli kerfa verið þannig að ef starfsmaður var að flytjast á milli hópa í Tímon kom gildisdagur hóspins fram sem breytingardagsetningin á færslunni í Tenging innan fyrirtækis frá Kjarna. Þetta hefur verið lagfært og núna skilar Kjarni réttum gildisdegi ef skipulagseiningu er breytt í Tenging innan fyrirtækis. Sú breyting veldur því að ef línu er eytt úr spjaldini Tenging innan fyrirtækis þá skilar Tímontenging villu. Lausnin við því er að finna færsluna í Tímon fyrir hópinn sem verið var að eyða hjá starfsmanninum og eyða henni einnig þeim megin.