Lífeyrissjóði er að finna í hliðarvali > Laun > Lífeyrissjóðir
...
Table of Contents | ||||
---|---|---|---|---|
|
Almennar upplýsingar og stillingar fyrir vefskil |
---|
Til að byrja með eru slegnar inn allar almennar upplýsingar um sjóðinn. Númer lífeyrissjóðs er valfrjálst en mælst er til þess að notuð séu SAL númer sjóða.
|
Ef breytingar verða á gögnum á skilagrein.is http://skilagrein.is/ þá er hægt að uppfæra slóðina með því að smella á aðgerðarhjólið hjá viðkomandi sjóði og velja "Uppfæra vefskil". Slóðirnar eru einnig uppfærðar í hvert skipti sem útborgun er lokað í Kjarna. |
Í vissum tilvikum innheimtir einn sjóður iðgjöld fyrir fleiri sjóði. Vefskil innheimtuaðila er valið með því að smella á punktalínuna í reitnum „Vefskil – Innheimtuaðili" Til að setja inn frekari stillingar eins og notendanafn og lykilorð fyrir vefskil (Veflyklar) er CTRL takkanum haldið inni og smellt á punktalínuna. |
Ef aðeins eitt fyrirtæki er uppsett í Kjarna eru upplýsingar um notendanafn og lykilorð skráð í fyrstu myndina sem opnast, en ef þau eru fleiri, þarf að smella á bláa textann „Skilgreina aðgang fyrirtækja" |
Hér til hliðar er skjámynd af http://skilagrein.is – þarna sést að Almenni lífeyrissjóðurinn á sjóðsnúmer 1004. Lengst til hægri sést að innheimtuaðilinn á númer 1005. Í næstu línum sjáum við að séreign og endurhæfingarsjóður eru líka innheimtir af 1005, þó svo að sjóðsnúmer þeirra séu önnur. |
Aðsetur | |
---|---|
Í þennan flipa eru settar inn allar grunnupplýsingar ásamt upplýsingum um þá bankareikninga sem greiða skal iðgjöld inná. Þessar upplýsingar fást hjá sjóðunum sjálfum. |
...
Afrita lífeyrissjóðsspjald | |
---|---|
Þegar nýr lífeyrissjóður er stofnaður eða eldri lífeyrissjóð viðhaldið þarf að gæta þess að fylla skilmerkilega inn í þá flipa sem við eiga í lífeyrissjóðsspjaldinu. Athugið vel að þegar lífeyrissjóður hefur verið afritaður, borgar sig að loka honum strax, fríska listann og opna nýja sjóðinn aftur og ljúka stillingum. Númer sjóðs á launamiða í flipanum skilagrein afritast þannig að því númeri þarf að breyta eftir að búið er að stofna lífeyrissjóðinn. |